Þematónleikar í tilefni Dags tónlistarskólanna 15., 20. og 25. febrúar
25.02.2012
Dagur tónlistarskólanna er haldinn hátíðlegur um allt land laugardaginn 25. febrúar 2012.
Í
tilefni dagsins stendur Tónlistarskóli Árnesinga fyrir sjö
svæðistónleikum um alla sýslu. Þema tónleikanna er samspil og má því
búast við óvenju fjölbreyttri efnisskrá þar sem nemendur koma fram í
stórum og smáum hópum.
Tónleikar verða sem hér segir:
mi. 15. feb. kl. 18:00 - Þorlákshöfn - Tónleikar í Þorlákskirkju
má. 20. feb. kl. 18:30 - Hveragerði - Tónleikar í Hveragerðiskirkju
lau. 25. feb.
- kl. 11:00 - Lágsveitir (FLÓ, STO, EYR) - Tónleikar í Þjórsárveri
- kl. 11:00 - Uppsveitir vestan Hvítár (KER, LAU, REY) - Tónleikar í félagsheimilinu Minni Borg
- kl. 13:00 - Uppsveitir austan Hvítár (FLÚ, ÞJÓ) - Tónleikar í Árnesi
- kl. 13:00 - Selfoss - Tónleikar í sal skólans Eyravegi 9
- kl. 15:00 - Selfoss - Tónleikar í sal skólans Eyravegi 9
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
|
Flokkur: General |