Valþáttartónleikar fimmtud. 15. mars kl. 18:30
15.03.2012
Valþáttartónleikar eru nýir af nálinni í tónleikahaldi Tónlistarskóla
Árnesinga. Hugmyndin kviknaði sl. vetur þegar þema vetrarins var
frumsamin tónlist, en valþáttur á prófum byggist m.a. á frumsaminni
tónlist, spuna og eigin útsetningum.
Valþáttartónleikarnir verða haldnir fimmtud. 15. mars kl. 18:30 í sal skólans á Selfossi.
Flytjendur eru nemendur sem undirbúa áfangapróf í marslok.
|
Flokkur: General |