Tónlistarhópurinn baBel spilar Exit Music í sal Tónlistarskólans fimmtud. 26. jan. kl. 20:30

18/01/2012

Tónlistarhópurinn baBel spilar Exit Music í sal Tónlistarskóla Árnesinga fimmtudaginn 26. Janúar kl: 20:30. Exit Music er hugarsmíð tónlistarhópsins baBel og listmálarans Olivier Saudan. Myndirnar eftir Olivier Saudan eru uppsprettan af verkinu og voru málaðar á ferð hans um Ísland. Með honum var meðlimur baBel Laurent Estoppey.

Tónleikarnir eru sambland af rokki, nýrri klassískri tónlist og sjónlist. Upplifuninni mætti best lýsa sem hraðlest á fullu stími inn í nóttina. Tónlistin er blanda Radiohead plötunnar Exit Music og verksins Pacific 231. Þessir ólíku stílar mætast ásamt sjónlist Olivier og mynda frábæran heim sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

baBel er komið til Íslands til að spila á Myrkum Músíkdögum sem fara fram í Hörpu dagana 26.-29. janúar og munu vera eitt aðalnúmerið í Silfurbergi laugardaginn 28. janúar kl: 22:00.

Tónleikarnir á Selfossi eru í samstarfi við Tónlistarskóla Árnesinga og verða í sal tónlistarskólans á Selfossi að Eyravegi 9. Tónleikarnir byrja stundvíslega kl: 20:30. Vakin er athygli á því að aðgangur er ókeypis.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði baBel:
http://www.babelensemble.ch/

Tónlistarhópurinn baBel

Tónlistarhópurinn baBel

  

| Posted by Helga Sighvatsdóttir | Flokkur: General |