Gjöf til skólans
21/11/2011
Á píanó- og söngdeildartónleikunum var Tónlistarskóla Árnesinga afhent
að gjöf, nótnahefti og geisladiskar Guðmundar Gottskálkssonar.
Skólastjóri tónlistarskólans tók við gjöfinni úr hendi barna Guðmundar,
þeirra Lilju og Magnúsar, en fjölskylda Guðmundar hefur ákveðið að gefa
öllum tónlistarskólum á landinu hefti hans til varðveislu.
Guðmundur Gottskálksson fæddist 16. apríl 1931 og bjó að Hvoli í Ölfusi.
Hann var organisti og tónskáld og lék undir hjá kórum. Þá spilaði hann
víða á samkomum, s.s. við messur og helgistundir hjá Heilsuhæli NLFÍ í
Hveragerði.
Guðmundur gaf út tvo geisladiska. Þann fyrri í tilefni af 70 ára afmæli
sínu árið 2001, en á honum spilar hann á orgel Selfosskirkju. Seinni
diskinn gaf hann út í tilefni af 75 ára afmæli sínu 2006. Á honum syngur
Kammerkór Suðulands. Nótnaheftin sem skólinn fékk afhent innihalda
kórverkin.
Guðmundur Gottskálksson lést 23. febrúar 2011.
Tónlistarskólinn þakkar fjölskyldunni kærlega fyrir höfðinglega gjöf.
Lilja, Magnús og Róbert |
| Posted by Helga Sighvatsdóttir |
Flokkur: General |