Listin að stjórna

Þriðja hvert ár, hefur Tónlistarskóli Árnesinga boðið nemendum í framhaldsdeild upp á námskeið sem heitir „Listin að stjórna“.

Á námskeiðinu læra nemendur undirstöðuatriði varðandi hljómsveitar- og kórstjórn, ásamt því að kynnast útsetningum.

Góður hópur nemenda sækir þetta skemmtilega námskeið í vetur, undir styrkri stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar.

    

Listin að stjórna2019-11-15T15:40:12+00:00

Jólafrí

Jólafrí hefst laugard. 21. desember.

Jólafrí2019-11-08T18:17:37+00:00

Umbreytt kennsla 19. og 20. desember

Síðustu tvo kennsludagana fyrir jólafrí fellur niður öll hefðbundin kennsla, en í staðinn fara kennarar með nemendur í heimsóknir á hjúkrunarheimili, í leikskóla, leika á litlu jólum grunnskólanna, á fundum, í verslunum o.fl. o.fl.

Því miður náum við ekki að fara með alla okkar nemendur svona út í bæ, en kennarar hafa í nógu að snúast. Þetta tónleikahald getur verið hvenær sem er í desember, allt eftir því hvað hentar á stöðunum sem við heimsækjum.

– Það er mjög ánægjulegt að geta með þessu móti opnað skólann út í samfélagið og glatt samborgarana.

Umbreytt kennsla 19. og 20. desember2019-11-08T17:19:13+00:00

Eldri blokkflautusveit með Sinfóníuhljómsveit Íslands 14. og 15. des.

14. og 15. desember kl. 14:00 og 16:00 báða dagana, mun eldri blokkflautusveit Tónlistarskóla Árnesinga leika með Sinfónlíuhljómsveit Íslands á jólatónleikum sveitarinnar. Þetta er einstaklega spennandi verkefni og mikil tilhlökkun að spila með hljómsveitinni á Eldborgarsviði Hörpu.

Eldri blokkflautusveit með Sinfóníuhljómsveit Íslands 14. og 15. des.2019-12-09T09:03:36+00:00

Eyrún Huld með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna

30. nóvember kl. 16:00 mun Eyrún Huld Ingvarsdóttir, fiðlunemandi skólans leika með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna í Seltjarnarneskirkju. Eyrúnu Huld hlaut þennan heiður, þegar hún var valin úr glæsilegum hópi fiðluleikara á lokatónleikum Nótunnar í Hofi á Akureyri sl. vor.

Eyrún Huld með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna2019-11-08T17:15:31+00:00

Lúðrasveitamaraþon í Hörpu

Sunnudaginn 17. nóvember taka eldri blásarasveitir Tónlistarskóla Árnesinga á Selfossi og í Þorlákshöfn, þátt í lúðrasveitamaraþoni í Silfurbergi í Hörpu.

Fram koma skólalúðrasveitir af öllu landinu og leika frá kl. 11:00 – 18:00. Blásarasveitirnar okkar stíga á svið kl. 13:00 – 13.30.

Aðgangur er ókeypis og þetta því tilvalið tækifæri til að koma og hlusta á áhugaverða tónlist með áhugasömum flytjendum.

 

Lúðrasveitamaraþon í Hörpu2019-11-08T17:12:42+00:00

Deildatónleikaröð Tónlistarskóla Árnesinga

Deildatónleikaröð Tónlistarskóla Árnesinga inniheldur sjö tónleika og standa þeir til 11. nóvember 2019.

Á tónleikunum koma fram allar hljómsveitir og samspilshópar skólans auk margra smærri samleiksatriða og einleikara. Alls má reikna með að um 300 nemendur hafi stigið á svið þegar tónleikaröðinni lýkur.

Blásaradeildartónleikarnir í Sunnulækjarskóla 30. október sl., voru mjög fjölbreyttir eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Nemendur stóðu sig með mikilli prýði og eiga hrós skilið fyrir frammistöðuna.

Sjá má upplýsingar um komandi tónleika hér á heimasíðunni, en aðgangur er öllum opinn og frítt inn. Áhugasömum veitist hér einstakt tækifæri til að fá innsýn í starfsemi Tónlistarskóla Árnesinga.

[…]

Deildatónleikaröð Tónlistarskóla Árnesinga2019-11-01T14:05:08+00:00

Orda blokkflautukeppni

Tveir blokkflautunemendur, Kristín Viðja Vernharðsdóttir og Elín Karlsdóttir tóku þátt í Orda-blokkflautukeppni í Amsterdam dagana 24. – 27. október.

Að fá tækifæri til að taka þátt í keppni sem þessari er heilmikið æfintýri og mjög lærdómsríkt, en báðar fengu þær frábærar umsagnir frá dómnefndinni.

Auk þess að leika sjálfar sóttu stúlkurnar fjölda tónleika, m.a. hjá Lucie Horsch blokkflautuleikara.

     

 

Orda blokkflautukeppni2019-10-29T16:47:59+00:00

Hausttónleikar í lok nóvember

Í lok nóvember hefjast hausttónleikar skólans þar sem hver kennari fyrir sig (eða fleiri saman eftir fjölda nemenda) heldur tónleika með sínum nemendum.

Nánari upplýsingar um stund og stað fá nemendur hjá sínum kennurum.

Hausttónleikar í lok nóvember2019-10-29T15:12:16+00:00

Píanóhringekja – heimsókn

Píanónemendur fá til sín góða gesti þann 16. nóvember, þegar um 30 píanónemendur Tónskóla Sigursveins koma í heimsókn.

Nemendur beggja skóla æfa saman fjórhent og sexhent lög, sem verða svo flutt á tónleikum kl. 13:00 sama dag, í sal skólans að Eyravegi 9 á Selfossi.

Píanóhringekja – heimsókn2019-10-29T15:10:59+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi