Upprifjunardagur Suzuki-píanónemenda

Suzuki-píanónemendur (sem lokið hafa bók 1) mættu á upprifjunardag sunnudaginn 13. október, í tónlistarskólanum á Selfossi.

Á upprifjunardegi eru leikin lög sem nemendur hafa lært í Suzukináminu. Þeir sem hafa lært lengst leika öll lögin á dagskránni, en þeir sem skemur eru komnir á veg leika þau lög sem þeir hafa náð tökum á.

Upprifjunardagarnir eru alltaf skemmtilegir, en um leið krefjandi. Það var því stoltur hópur sem stillti sér upp til myndatöku í dagslok.

    

Upprifjunardagur Suzuki-píanónemenda2019-10-29T15:02:30+00:00

Hljóðfærakynningar í grunnskólum

Kennarar Tónlistarskóla Árnesinga skiptast á að heimsækja alla nemendur í 2. bekk í grunnskólum sýslunnar með hljóðfærakynningar. Hver bekkur fær fimm heimsóknir yfir veturinn þar sem nemendum eru kynntir mismunandi hljóðfæraflokkar. Í hverri kynningu fá nemendur sögubrot, upplýsingar um hvernig hljóðfærin virka, heyra leikin lög, prófa sjálf hljóðfærin – og að auki eru sungin þrjú lög sem fylgja öllum hljóðfærakynningum vetrarins. Í vetur syngja nemendur lögin: Dvel ég í draumahöll, Krummi svaf í klettagjá og Tónlistarskólalagið.

Það er tekið afskaplega vel á móti tónlistarkennurunum þegar þeir mæta í heimsóknirnar og börnin mjög áhugasöm. Verkefnið hefur því verið gefandi fyrir alla sem að […]

Hljóðfærakynningar í grunnskólum2019-10-30T10:33:31+00:00

Söngdeildartónleikar í Hveragerðiskirkju

Söngdeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir mánud. 11. nóvember 2019 kl. 18:00, í Hveragerðiskirkju.

Á tónleikunum fléttast saman einsöngur og samsöngur í fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá.

 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Söngdeildartónleikar í Hveragerðiskirkju2019-10-04T09:54:16+00:00

Rytmískir deildatónleikar í sal skólans Eyravegi 9 á Selfossi

Rytmískir deildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir föstud. 8. nóvember 2019 kl. 17:30, í sal skólans Eyravegi 9 á Selfossi (3. hæð).

Á tónleikunum koma fram allar rytmískar sveitir skólans, auk ýmiskonar samleiks, einleikara og gesta úr öðrum deildum.

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.

 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Rytmískir deildatónleikar í sal skólans Eyravegi 9 á Selfossi2019-10-04T09:49:31+00:00

Píanódeildartónleikar í Þorlákskirkju

Píanódeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir fimmtud. 7. nóvember 2019 kl. 18:00, í Þorlákskirkju.

Á tónleikunum koma fram píanónemendur á öllum aldri og námsstigum, sem leika einleik, fjórhent og sexhent.

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.

 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Píanódeildartónleikar í Þorlákskirkju2019-10-04T09:43:07+00:00

Strengjadeildartónleikar í Selfosskirkju

Strengjadeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir miðvikud. 6. nóvember 2019 kl. 18:00, í Selfosskirkju.

Á tónleikunum koma fram yngri og eldri strengjasveitir, fiðlu-, víólu- og selló-Suzukihópar.

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.

 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Strengjadeildartónleikar í Selfosskirkju2019-10-04T09:43:26+00:00

Gítardeildartónleikar í Listasafni Árnesinga í Hveragerði

Gítardeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir þriðjud. 5. nóvember 2019, kl. 18:00, í Listasafni Árnesinga, Austurmörk 21 í Hveragerði.

Á tónleikunum koma fram allar gítarsveitir og Suzuki-gítarhópar skólans.

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.

 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Gítardeildartónleikar í Listasafni Árnesinga í Hveragerði2019-10-04T09:37:00+00:00

Blokkflautudeildartónleikar í Sunnulækjarskóla

Blokkflautudeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir mánud. 4. nóvember 2019 kl. 19:00, í Sunnulækjarskóla á Selfossi.

Á tónleikunum koma fram yngri og eldri blokkflautusveitir, Suzukihóparnir þrír (Flautustubbar, Flautusnúðar & Flautusnillingar), auk einleiksatriða.

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.

 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Blokkflautudeildartónleikar í Sunnulækjarskóla2019-10-04T09:37:54+00:00

Málþing í Hörpu – Framtíð tónlistarskólanna – Hvert stefnum við?

Í tilefni af 50 ára afmæli Samtaka tónlistarskólastjóra (STS) efna samtökin til málþings í Kaldalóni í Hörpu föstudaginn 27. september.

Yfirskrift málþingsins er „Framtíð tónlistarskólanna – hvert stefnum við ? “ – sjá dagskrá málþingsins í meðfylgjandi auglýsingu:  4MÁLÞING-A3+POSTER CV

Fulltrúar stjórnvalda, menningarmála, háskólasamfélagsins, tónlistarkennara, foreldra, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og ÚTÓN hafa verið kallaðir til, til að heyra um væntingar þeirra til tónlistarskólanna og framtíðarsýn. Marc Erkens, sem hélt hrífandi tónleikafyrirlestur fyrir STS félaga í Belgíu sl. haust, mun einnig koma fram á málþinginu.

Fjölbreytt atriði koma frá tónlistarskólunum og tvíeykið vinsæla „Hundur í óskilum“ mun skemmta gestum.

Aðgangur að málþinginu er ókeypis og öllum opinn.

Málþing í Hörpu – Framtíð tónlistarskólanna – Hvert stefnum við?2019-09-24T09:16:31+00:00

Með Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Tveir nemendur Tónlistarskóla Árnesinga léku með Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands á tónleikum sveitarinnar sunnudaginn 22. september sl. Þetta voru Katrín Birna Sigurðardóttir á selló og Elísabet Anna Dudziak á fiðlu. Stóðu þær sig með miklum sóma á tónleikunum, en þess má geta að Katrín Birna var leiðari sellódeildar.

Að baki er prufuspil, langur undirbúningstími og þéttar æfingar – og uppskeran 9. sinfónía Beethovens í Eldborgarsal Hörpu, undir stjórn Daniel Raiskin.

Tónleikarnir voru einstaklega skemmtilegir. Auk hljómsveitarinnar komu fram sex kórar og fjórir einsöngvarar og voru í allt um 300 flytjendur á sviði. Frábært tækifæri fyrir alla þá nemendur sem tóku þátt.

[…]

Með Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands2019-09-24T12:52:28+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi