Blásaradeildartónleikar í Sunnulækjarskóla

Blásaradeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir í Sunnulækjarskóla miðvikud. 30. október 2019, kl. 18:00.

Á tónleikunum koma fram blásarasveitirnar fjórar (frá Selfossi og Þorlákshöfn), ásamt fjölda einleikara og smærri samspilshópa.

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.

 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Blásaradeildartónleikar í Sunnulækjarskóla2019-10-30T15:27:15+00:00

Haustfrí

Haustfrí Tónlistarskóla Árnesinga verður dagana 17. – 21. október.

Kennsla fellur niður þessa daga.

Haustfrí2019-09-20T10:52:26+00:00

Starfsdagur 10. október – kennsla fellur niður

Kennsla fellur niður fimmtud. 10. október vegna starfsdags.

Þennan dag sækja kennarar fundi og námskeið á haustþingi tónlistarskólakennara fyrir Suðurland og Suðurnes. Þingið er að þessu sinni haldið á Eyrarbakka.

Starfsdagur 10. október – kennsla fellur niður2019-09-20T10:50:35+00:00

Foreldraheimsóknarvika 9. – 13. september

Foreldraheimsóknarvika verður 9. – 13. september.

Í þeirri viku eru foreldrar sérstaklega boðnir velkomnir með börnum sínum í tíma. Í heimsóknartímanum fer kennarinn yfir viðfangsefni og markmið vetrarins með nemanda og foreldrum.

Við hvetjum alla foreldra til að mæta í heimsóknarvikunni, en foreldrum er að sjálfsögðu alltaf velkomið að mæta með nemanda og fylgjast með venjulegri kennslustund hvenær sem er.

Foreldraheimsóknarvika 9. – 13. september2019-08-10T13:31:00+00:00

Undirleikstímar hefjast 9. september

Undirleikstímar söngnemenda og nemenda í föstum undirleik (í 5. stigi og ofar) hefjast 9. september.

Sjá A og B vikur í skóladagatali hér fyrir ofan.

Undirleikstímar hefjast 9. september2019-08-10T13:28:14+00:00

Kennsla hefst 28. ágúst

Kennsla hefst miðvikud. 28. ágúst 2019.

(Kennarar hafa samband við nemendur vegna stundutöflugerðar á starfsdögum 21. – 27. ágúst).

Kennsla hefst 28. ágúst2019-08-10T13:18:22+00:00

Innritunardagar

Þeir nemendur sem fengið hafa skólavist í Tónlistarskóla Árnesinga veturinn 2019- 2020 hafa fengið sendan tölvupóst.

Skólavist þarf að staðfesta með greiðslu skólagjalda fyrir 15. ágúst, en greiðsla skólagjalda fer fram með rafrænum hætti. Sjá nánari upplýsingar í tölvupósti.

Þeir nemendur sem ekki ætla að nýta sér kennslu tónlistarskólans í vetur eru vinsamlegast beðnir um að láta strax vita, með því að hringja í síma 482 1717 eða senda tölvupóst á netfang skólans, tonar@tonar.is.

Innritunardagar2019-08-10T13:17:45+00:00

Skrifstofan opnar 7. ágúst

Skrifstofa Tónlistarskóla Árnesinga opnar aftur eftir sumarleyfi þann 7. ágúst.

– – –

Tónlistarskóli Árnesinga
Eyravegi 9, 800 Selfossi
Sími: 482 1717
Netfang: tonar@tonar.is
Veffang: www.tonar.is

Skrifstofan opnar 7. ágúst2019-06-18T14:32:07+00:00

Þrír söngnemendur útskrifaðir

Þrír söngnemendur luku framhaldsprófi frá tónlistarskólanum í maí, með glæsilegum framhaldsprófstónleikum.

Þetta voru þær Berglind María Ólafsdóttir, Unnur Þórisdóttir og Sædís Lind Másdóttir. Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan stóra námsáfanga.

Hér má sjá þær stöllur syngja saman lokalag tónleikanna.

Þrír söngnemendur útskrifaðir2019-05-22T14:48:35+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi