2025-07-08T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today
All Day

Smiðjuvika 12. – 16. maí

Vikuna 12. – 16. maí stokkum við upp alla hefðbundna kennslu. Í stað hefðbundinna kennslustunda sækja nemendur smiðjur/námskeið sem kennarar skólans sjá um. Miðað er við að nemendur sæki eina til tvær smiðjur. (Nemendur í hálfu námi sæki a.m.k. 1 klst. smiðju og nemendur í heilu námi 2 klst. smiðju).   Í pósti til nemenda/foreldra 7.5.2025 er smiðjudagatal fyrir vikuna 12. - 16. maí. Í dagatalinu má sjá hvaða smiðjur eru í boði á hverjum kennslustað og hvenær þær eru. ATH. að kennarar sjá um að skrá í smiðjurnar.  Góða skemmtun í smiðjuvikunni 😊

Barokktónleikar söngdeildar í Selfosskirkju 15. maí

Söngdeild Tónlistarskóla Árnesinga heldur barokktónleika í Selfosskirkju fimmtud. 15. maí kl. 17:00. Flutt verður tónlist frá barokktímabilinu (1600-1750), en flytjendur eru söngnemendur undir stjórn Margrétar S. Stefánsdóttur og Eyjólfs Eyjólfssonar. Ester Ólafsdóttir leikur með á sembal og Uelle Hahndorf á selló. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!    

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi