2025-10-14T00:00:00+00:00
Loading Events

Afmælis-hátíðartónleikar 15. nóvember kl. 14:00 í íþróttahúsinu á Laugarvatni.

Tónlistarskóli Árnesinga var stofnaður í október árið 1955 og fagnar því 70 ára afmæli í haust.

Í tilefni af afmælinu verða haldnir hátíðartónleikar þann 15. nóvember á Laugarvatni. Á tónleikunum leiða saman hesta sína nemendur úr öllum hljóðfæra- og söngdeildum skólans auk þess sem leikskólabörnum úr Uppsveitum og Flóa hefur verið boðin þátttaka. Nær allar hljómsveitir og samspilshópar skólans taka þátt í ævintýrinu og það má því reikna með að flytjendur verði um 150 talsins.

Í verkefnavali er horft til tónskálda, útsetjara og hljómsveita úr Árnessýslu, auk þess sem tónbókmenntir hljóðfæranna fá að njóta sín.

Við hlökkum til að taka á móti gestum okkar og vonumst til að sjá sem flesta.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.

Verið öll hjartanlega velkomin!

 

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi