2026-03-27T00:00:00+00:00
Loading Events

Átta blokkflautunemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga taka þátt í Krakkabarokkhátíð á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars kl. 15:00, ásamt fjölda annarra hljóðfæranemenda og kóra.

Frítt inn, en hér er hægt að ná sér í (ókeypis) miða: https://www.harpa.is/vidburdir/20144

 

Upplýsingar af vef Hörpu:

Krakkabarokk í Eldborg 

 29. mars kl. 15:00–16:00
Eldborg, Harpa
Aldur: 5–15 ára
Tungumál: Íslenska – hægt að njóta óháð tungumáli
Aðgangur: Ókeypis – skráning á harpa.is

Krakkabarokk í Eldborg eru fjölskyldutónleikar þar sem Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk flytur fjölbreytta tónlist frá barokk- og endurreisnartímanum í félagi við tónlistarnemendur og kórsöngvara af höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Norðurlandi eystra.

Á tónleikunum má heyra einleik, samleik og kórsöng með undirleik hátíðarhljómsveitar Krakkabarokks – glæsileg samverustund þar sem hinn ríki tónlistararfur fær að blómstra í höndum ungra og efnilegra flytjenda.

Tónleikarnir eru í samstarfi við tónlistarhátíðina Reykjavík Early Music Festival.

Viðburðahaldari er Harpa

Þessi viðburður er ókeypis

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi