Nótutónleikar í Salnum Kópavogi 18. apríl
18. apríl kl 13:00 - 14:00
Nótutónleikar í Salnum, Kópavogi, laugard. 18. apríl kl. 13:00
Á svæðistónleikum skólans í febrúar fengu áheyrendur tækifæri til að velja þau atriði sem þeim þóttu mest heillandi. Þau atriði sem flest stig fengu fóru í „Nótupottinn“ og svo féll það í hlut deildarstjóranna að velja atriði til flutnings á Nótutónleikunum í Kópavogi (uppskeruhátíð tónlistarskóla á Suðurlandi, Suðurnesjum og í Kraganum).
Eftirtalin þrjú atriði taka þátt fyrir hönd Tónlistarskóla Árnesinga:
Gunnlaugur Ernst Hákonarson, selló
Daníel Ingvarsson, saxófónn
Söngfuglar Tónlistarskóla Árnesinga
Við óskum nemendum og kennurum til hamingju með að vera valin til þátttöku í þessum skemmtilega viðburði.