2025-06-14T00:00:00+00:00
Loading Events

Píanókennari og meðleikari 50% starf + afleysingar | Tónlistarskóli Árnesinga

Tónlistarskóli Árnesinga óskar eftir að ráða til starfa píanókennara og meðleikara frá 1. ágúst 2025.

Kennslustaður: Þorlákshöfn (+ afleysingar í Hveragerði)

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Tónlistarkennaramenntun og/eða kennslureynsla
  • Færni í meðleik
  • Virðing og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð

 

Kennt er samkvæmt Aðalnámskrá tónlistarskóla.

Launakjör skv. kjarasamningum FT og FÍH við Samband íslenskra sveitarfélaga.

 

Nánari upplýsingar veitir Helga Sighvatsdóttir skólastjóri.

Síma 861-9687, póstfang: helga@tonar.is.

 

Umsóknarfrestur er til 27. júní 2025. 

Með umsókn fylgi upplýsingar um menntun og fyrri störf.

 

Tónlistarskóli Árnesinga er einn af stærstu tónlistarskólum landsins með starfsemi á 12 kennslustöðum í Árnessýslu. Fjöldi nemenda er um 500 og um 40 kennarar starfa við skólann.

 

 

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi