Skólastjóraskipti í Tónlistarskóla Árnesinga – umsóknarfrestur til 7. apríl
11. mars - 7. apríl
Af vef ráðningarstofunnar www.mognum.is
SKÓLASTJÓRI TÓNLISTARSKÓLA ÁRNESINGA – 50skills
– – –
SKÓLASTJÓRI TÓNLISTARSKÓLA ÁRNESINGA
Tónlistarskóli Árnesinga leitar að öflugum leiðtoga til að stýra faglegu starfi og rekstri eins stærsta og umsvifamesta tónlistarskóla landsins.
Skólastjóri ber ábyrgð á faglegu starfi, daglegum rekstri og þróun skólans og leiðir öflugt teymi starfsfólks.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi skólans
- Leiða faglegt starf skólans og stuðla að áframhaldandi þróun tónlistarnáms
- Mannauðs- og launamál
- Samskipti við sveitarfélög, grunnskóla og aðra samstarfsaðila
- Áætlanagerð og upplýsingagjöf
- Vinna með starfsmönnum skólans að stefnumótun og þróun starfseminnar
- Ýmis önnur verkefni sem snerta stjórnun skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Tónlistarmenntun á háskólastigi; menntun á sviði stjórnunar kostur
- Stjórnunarreynsla, reynsla af verkefnastjórnun, rekstri og/eða menningarstarfi æskileg
- Innsýn í starfsemi tónlistarskóla og þróun tónlistarnáms æskileg
- Leiðtogafærni og hæfni til að leiða faglegt starf og þróun
- Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund
- Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Fagmennska, frumkvæði og metnaður í starfi
- Mjög góð tölvukunnátta, tæknilæsi og innsýn í samfélagsmiðla
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Sótt er um á www.mognum.is
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2026
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt upplýsingum um umsagnaraðila og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir og rökstutt á kerfisbundinn hátt, hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Nánari upplýsingar veita:
Sigríður Ólafsdóttir I sigga@mognum.is
Telma Eiðsdóttir I telma@mognum.is
Tónlistarskóli Árnesinga er samrekinn af öllum átta sveitarfélögum Árnessýslu og er einn stærsti og umsvifamesti tónlistarskóli landsins. Starfsemi skólans fer fram á tólf stöðum í sýslunni. Fjöldi nemenda er um 540 og um 40 kennarar starfa að jafnaði við skólann. Kennt er á flest öll hefðbundin klassísk og rytmísk hljóðfæri.
Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki í menningarlífi Árnessýslu með metnaðarfullu starfi, öflugu tónleikahaldi og virku samstarfi við skóla, sveitarfélög og samfélagið.