„Burtu með fordóma“-fjölskyldutónleikarnir 1. maí

Þann 1. maí tóku um 100 nemendur og kennarar Tónlistarskóla Árnesinga þátt í fjölskyldutónleikum með Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í íþróttahúsi Vallaskóla, sem kölluðust „Burtu með fordóma“. Á tónleikunum komu líka fram um 80 leikskólabörn úr Árborg og tvíeykið Gunni og Felix sáu um kynningar og sungu. Stjórnandi tónleikanna var Guðmundur Óli Gunnarsson.

Á tónleikunum voru flutt alls konar lög sem áttu það öll sameiginlegt að hvetja til vináttu og samvinnu. Var það mikið ævintýri fyrir bæði nemendur og kennara að fá tækifæri til að taka þátt í þessu stóra verkefni með Sinfóníuhljómsveit Suðurlands. Nemendur voru allir til mikillar fyrirmyndar – augljóst að þeir mættu vel undirbúnir og að kennarar héldu vel utan um þá.

Þessi viðburður var einn af þeim allra stærstu, því á sviði voru um 220 manns alls og áheyrendur í sal hátt í 700. Frábær stemning og allir skemmtu sér vel 🙂

Við þökkum öllum sem fram komu innilega fyrir frábæra frammistöðu og áheyrendum fyrir komuna!

/Helga Sighv.

 

 

Allir á sviði og troðfullur íþróttasalur Vallaskóla 1. maí           Tréblásarar á æfingu í Stekkjaskóla                                               Strengjaleikarar á æfingu í Stekkjaskóla

     

Söngfuglar og gítarleikarar á æfingu                Hljómsveitaræfing í Stekkjaskóla

 

2025-05-14T11:47:58+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi