18. og 19. desember er kennsla óhefðbundin. Í stað kennslu þessa daga, fara kennarar með nemendur (eftir því sem við verður komið) út í samfélagið að leika jólalög og aðra fallega tónlist fyrir samborgarana. Sú spilamennska fer oft fram á öðrum dögum í desember, eða allt eftir því hvenær hægt er að heimsækja t.d. hjúkrunarheimili, leikskóla, verslanir, viðburði og annað sem óskað hefur verið eftir. Þá taka margir nemendur og kennarar tónlistarskólans virkan þátt í Litlu-jólum grunnskólanna þessa daga og leika undir dansi í kringum jólatré.
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá jólaspilamennsku í desember.

Píanónemendur í leikskólanum Reykholti Blásarar á bókasafninu Selfossi

Blokkflautur á bókasafninu Selfossi
/Helga Sighv.