Skólastjóri lítur um öxl

Skólastjóraskipti í Tónlistarskóla Árnesinga

Við þau tímamót að ég læt af störfum sem skólastjóri, er gaman að líta um öxl og horfa yfir farinn veg sl. 30 ár.

Ég hóf kennslu við Tónlistarskóla Árnesinga árið 1995, en hafði þá starfað í rúm 10 ár við Tónmenntaskóla Reykjavíkur og víðar.

Árið 2000 óskaði Róbert A. Darling, þá nýráðinn skólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga, eftir að ég tæki að mér hlutverk aðstoðarskólastjóra sem ég þáði. Þar með hófst mjög gefandi og skemmtilegt ævintýri við að byggja upp og þróa skólann í gegnum ótrúlegar breytingar á málefnum tónlistarskóla, sem og tæknilegar breytingar.

Þegar litið er til baka er í raun sérstakt að horfa til fyrstu áranna. Á þessum tíma var fólk að fá sér tölvur og fáir með tölvunetfang. Samskipti við kennara voru því fyrsta kastið með bréfapósti og innheimta skólagjalda útheimti margar handskrifaðar kvittanir. Pappírsvinnan var því umtalsverð í upphafi, en hún færðist svo auðvitað smám saman að mestu í rafrænt form. Árið 2000 tók gildi ný Aðalnámskrá tónlistarskóla og 2001 nýir kjarasamningar sem höfðu umtalsverð áhrif á starfsemi og rekstur tónlistarskóla. Þessar breytingar kölluðu á mörg ný verkefni.  Ráðinn var ritari að skólanum í janúar 2001 (Ragnhildur Magnúsdóttir) og viðbótarstjórnandi á skrifstofu haustið 2001 (Jóhann I. Stefánsson).

Ég var ráðin skólastjóri tónlistarskólans 1. janúar 2018 þegar Róbert lét af störfum. Á sama tíma var Jóhann, sem þekkti alla þræði skólastarfsins, ráðinn aðstoðarskólastjóri.

Eftir rúm 17 ár sem aðstoðarskólastjóri vissi ég að hverju ég gekk þegar ég sótti um starf skólastjóra – skemmtilegu og gefandi starfi, en um leið mjög krefjandi og annasömu.

 

Skólinn þjónar öllum átta sveitarfélögum Árnessýslu, kennsla fer fram á 15 stöðum, kennarar í vetur eru 40 talsins og nemendur um 540.

Boðið er upp á kennslu á nær öll hefðbundin klassísk og rytmísk hljóðfæri skv. Aðalnámskrá tónlistarskóla, auk Suzukikennslu fyrir yngstu börnin og sérkennslu fyrir þá sem þurfa.

Þá heimsækja deilarstjórar og kennarar hjúkrunar- og öldrunarstofnanir sýslunnar á hverri haustönn, og á vorönn alla grunnskóla sýslunnar þar sem nemendur í 2. bekk fá hljóðfærakynningar (alls 60 heimsóknir). Haldnir eru tónleikar með ýmsu sniði allan veturinn, leikið víða úti í samfélaginu o.s.frv.

Sem sjá má er starfsemin umfangsmikil, enda er skólinn einn af stærstu skólum landsins og sá víðfeðmasti.

 

Ekki er hægt að óska sér betra samfélags á vinnustað, en með þeim stjórnendum, deildarstjórunum, öllum kennurunum, riturum og ræstitækni sem ég hef verið svo lánsöm að starfa með öll þessi ár. Metnaðarfullur hópur fagfólks þar sem góð samskipti og hjálpsemi hafa einkennt allt starfið. Þá hafa samskipti við nemendur og foreldra, stjórnir Tónlistarskóla Árnesinga og sveitarstjórnarfólk verið afskaplega ánægjuleg í gegnum öll þessi ár.

Ég hef alltaf haft það að leiðarljósi að fylgja hjartanu og nú er komið að tímamótum. Eftir 26 ár í stjórnun við þennan dásamlega skóla segir hjartað mér að nú sé rétti tíminn til að stíga til hliðar og gefa öðrum sviðið. Sjálf fer ég að sinna einhverju af þeim fjölmörgu áhugamálum sem sett voru á hliðarlínuna þennan tíma og fæ meiri tíma til samvista við fjölskyldu og vini. Um leið kveð ég  vinnustaðinn og þetta góða samfélag með þakklæti og hlýju. Ég óska Tónlistarskóla Árnesinga allra heilla um ókomin ár!

Helga Sighvatsdóttir skólastjóri

– – –

Áhugasömum um skólastjórastarfið er bent á upplýsingar á ráðningarsíðu Mögnum – sjá hér: SKÓLASTJÓRI TÓNLISTARSKÓLA ÁRNESINGA

Um leið má geta þess að staða aðstoðarskólastjóra losnar á sama tíma, þ.e. frá 1. ágúst 2026. Staða aðstoðarskólastjóra verður auglýst í apríl.

Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir úr starfi skólans.

   

Frá uppsetningu á Söngvaseið 2003               Hljómsveitatónleikar 2004                                50 ára afmælistónleikar febrúar 2005

 

      

Skólinn flytjur á Eyraveg ágúst 2006                              Blokkflautumót október 2007                                     Þematónleikar maí 2008

      

Blásaradeildartónleikar nóv. 2013                  60 ára afmælistónleikar apríl 2015                                                         Töfraflautan í Hveragerðiskirkju apríl 2016

 

 

Allskynsóperan í Hólmaröst maí 2019                          Námskeið í upptökutækni á covid-tímum nóv. 2020

 

Lög Gunnars Þórðarsonar á Laugarvatni nóv. 2022                    Tónlistarskóli Árnesinga hlaut Menntaverðlaun Suðurlands 2022

   

Strengjanem. í lok Vínarbrauðstónleika í Árnesi maí ’24                       Burtu með fordóma, ásamt Sinfóníuhljómsveit Suðurlands maí 2025

    

Æfing fyrir 70 ára afmælistónleika nóv. 2025                                         70 ára afmælistónleikar Laugarvatni móv. 2025

 

 

 

2026-03-12T17:54:13+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi