Tímamót – Stjórnemendaskipti við Tónlistarskóla Árnesinga 1. ágúst 2026

Það er komið að tímamótum í stjórn Tónlistarskóla Árnesinga, því 1. ágúst nk. láta bæði skólastjóri og aðstoðarskólastjóri af störfum.

Helga Sighvatsdóttir skólastjóri og Jóhann I. Stefánsson hafa bæði komið að stjórn tónlistarskólans sl. 25 – 26 ár. Helga sem aðstoðarskólastjóri 2000 – 2017 og skólastjóri frá 2018 – 2026 auk blokkflautukennslu og Jóhann sem stjórnandi á skrifstofu frá 2001 – 2017 og aðstoðarskólastjóri frá 2018 – 2026 auk málmblásturskennslu.

Helga hverfur til annarra verkefna, en Jóhann mun áfram sinna kennslu við skólann.

Skemmtileg og gefandi ár eru að baki, sem við þökkum innilega fyrir!

Helga og Jóhann

Frá afhendingu menntaverðlauna Suðurlands 2022. (F.v.) Ásgerður Kristín Gylfadóttir, formaður SASS, Jóhann I. Stefánsson, aðstoðarskólastjóri, Helga Sighvatsdóttir, skólastjóri og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.

– – –

Áhugasömum um skólastjórastarfið er bent á upplýsingar á ráðningarsíðu Mögnum – sjá hér: SKÓLASTJÓRI TÓNLISTARSKÓLA ÁRNESINGA. Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2026.

Staða aðstoðarskólastjóra verður auglýst í apríl.

 

2026-03-12T13:48:16+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi