Tveir nemendur ljúka námi – framhaldsprófstónleikar Karolinu og Sylvíu

Tveir nemendur ljúka námi við Tónlistarskóla Árnesinga í vor með framhaldsprófi. Þetta eru þær Karolina Konieczna sem lýkur söngnámi og Sylvía Rossel sem lýkur blokkflautunámi.  Framhaldsprófi lýkur með opinberum tónleikum og fóru þeir fram 12. og 13. maí.

Karolina hélt söngtónleika í Selfosskirkju 12. maí. Ester Ólafsdóttir lék með á píanó, en að auki kom sönghópur tónlistarskólans fram og Anna María Konieczna söng með systur sinni.

Sylvía hélt blokkflaututónleika í Hveragerðiskirkju 13. maí. Meðleikarar hennar voru Guðjón Halldór Óskarsson á sembal og Uelle Hahndorf á selló. Að auki komu fram Daniel Cassidy á gítar, Hugrún Birna Hjaltadóttir á fiðlu, Kristín Jóh. Dudziak Glúmsdóttir og Helga Sighvatsdóttir á blokkflautur og blokkflautusveitir tónlistarskólans.

Báðir nemendur stóðu sig afskaplega vel og flutningur þeirra til fyrirmyndar.

Takk Karolina og Sylvía fyrir öll árin í Tónlistarskóla Árnesinga og góðar óskar inn í framtíðina!

/Helga Sighv.

   

Að afloknum tónleikum 12. maí – Karolina      Að afloknum tónleikum 13. maí – Sylvía

2025-05-14T11:51:22+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi