Nemendur tónlistarskólans komu víða fram í maí. Má þar nefna þátttöku í Krakkabarokki í Selfosskirkju þar sem Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk flutti fjölbreytta tónlist frá barokktímanum í félagi við tónlistarnemendur og kórsöngvara af Suðurlandi, hljóðfæraleik í fermingarveislum fjölskyldna, styrktartónleika og þing Landsbjargar á Selfossi þar sem leikið var fyrir um 500 þinggesti í íþróttahúsi Vallaskóla. – Alltaf gaman að geta stigið út í samfélagið með tónlistarflutning og gríðar góð reynsla fyrir nemendur.
/Helga Sighv.
Valdís Jóna og Marta Elísabet leika á styrktartónleikum
Frá þingi Landsbjargar í íþróttahúsi Vallaskóla (Mynd: www.dfs.is)