Viðhald hljóðfæra
Tónlistarskóli Árnesinga leigir út blásturs- og strokhljóðfæri til nemenda sinna til eins árs í senn samkvæmt gjaldskrá skólans.
Nemandinn fær í hendur hljóðfæri í hljóðfæratösku og eftirtalda fylgihluti:
Klarínettur: Hetta, eitt blað, þumalhlíf
Saxófónar: Hetta, eitt blað, háls-ól
Fiðlur: Bogi
Selló: Bogi
Þverflautur: Prik
Tónlistarskólinn sér um allt viðhald hljóðfæranna vegna eðlilegs slits vegna notkunar. Undir það fellur t.d.:
Tréblásturshljóðfæri: Festa púða sem losna á klarínettum og laga kork.
Strokhljóðfæri: Stilliskrúfur losna, skipta þarf um hár í boga.
– – –
Ef hljóðfærið verður fyrir skemmdum af völdum nemandans, sem hægt er að rekja til gáleysis eða rangrar meðferðar stendur nemandinn straum af viðgerðarkostnaði ef þörf krefur, t.d. ef hljóðfæri eyðileggst eða skekkist við að detta í gólf. Þá greiðir nemandinn ef hlutar hljóðfæris eða búnaðar týnist s.s. hettur af klarínettum.
Nemendur sjá sjálfir um kaup á eftirtöldum hlutum sem endurnýja þarf reglulega vegna hljóðfæraleiks:
Strokhljóðfæri: Strengir, mirra, pinnastæði, klútur
Gítarar: Strengir
Málmblásturshljóðfæri: Ventlaolía, baulufeiti.
Klarínettur: Blöð, háls-ól, klútur, korkfeiti.
Þverflautur: Klútur
Saxófónn: Blöð, klútur, korkfeiti.
* Foreldrar eru hvattir til að kynna sér möguleika á hljóðfæratryggingu hjá sínu tryggingarfélagi.