Krakkabarokk á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars
29. mars kl 15:00 - 16:00
Átta blokkflautunemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga taka þátt í Krakkabarokkhátíð á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars kl. 15:00, ásamt fjölda annarra hljóðfæranemenda og kóra.
Frítt inn, en hér er hægt að ná sér í (ókeypis) miða: https://www.harpa.is/vidburdir/20144
Upplýsingar af vef Hörpu:
Krakkabarokk í Eldborg
29. mars kl. 15:00–16:00
Eldborg, Harpa
Aldur: 5–15 ára
Tungumál: Íslenska – hægt að njóta óháð tungumáli
Aðgangur: Ókeypis – skráning á harpa.is
Krakkabarokk í Eldborg eru fjölskyldutónleikar þar sem Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk flytur fjölbreytta tónlist frá barokk- og endurreisnartímanum í félagi við tónlistarnemendur og kórsöngvara af höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Norðurlandi eystra.
Á tónleikunum má heyra einleik, samleik og kórsöng með undirleik hátíðarhljómsveitar Krakkabarokks – glæsileg samverustund þar sem hinn ríki tónlistararfur fær að blómstra í höndum ungra og efnilegra flytjenda.
Tónleikarnir eru í samstarfi við tónlistarhátíðina Reykjavík Early Music Festival.
Viðburðahaldari er Harpa
Þessi viðburður er ókeypis