Krakkabarokk í Hörpu – sérlega gæsilegir tónleikar

Krakkabarokk á pálmasunnudag í Hörpu

Átta blokkflautunemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga tóku þátt í Krakkabarokkhátíð á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars, ásamt fjölda annarra hljóðfæranemenda og kóra. Tóku nemendur okkar þátt í öllum sameiginlegum verkum og að auki léku blokkflautunemendur einir Rondeau eftir Bach – sjá á 44. mínútu í þessu myndbandi: https://youtube.com/watch?v=6TSptbV8ddY&feature=shared

Tónleikarnir voru í samstarfi við Reykjavík Early Music Festival, en það voru tónlistarnemendur og kórsöngvarar af höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Norðurlandi eystra sem fengu þarna tækifæri til að leika með Kammerhópnum ReykjavíkBarokk.

Nemendahópurinn okkar stóð sig afskaplega vel og var skólanum og kennurum sínum til mikils sóma. Innilega til hamingju!

Hér fyrir neðan eru myndir frá tónleikunum.

/Helga Sighv.

Frá æfingu í Fella- og Hólakirkju (mynd Sigursveinn Magnússon)

Allir flytjendur á sviði Hörpu á pálmasunnudag

                  

Nemendur og kennarar TÁ                             Allir blokkflautunemendurnir saman       … og allir blokkflautukennararnir

2026-04-10T11:05:38+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi