Tvisvar til þrisvar á ári hefur Tónlistarskóli Árnesinga tekið á móti nemendahópum frá Þýskalandi, sem eru í umönnunarnámi. Í Íslandsför sinni heimsækja nemendurnir ýmsa skóla og stofnanir í Árnessýslu og fá upplýsingar um starfsemina. Hópurinn sem heimsótti okkur í mars var óvenju stór, enda tveir hópar sem mættust þarna á sama tíma. Sylke Leyk hefur haldið utan um skipulag við þetta frábæra verkefni hér á Íslandi ásamt kennurum sem fylgja hópunum.
Það hefur verið gaman að fræða þessa áhugasömu nemendur um skólann okkar og tónlistarskóla á Íslandi, uppfræða þá um hve öflugt tæki tónlistin er í allri umönnun og svara spurningum gestanna. Við þökkum þeim innilega fyrir komuna 🙂
/Helga Sighv.
