Tónleikadagskrá aprílmánaðar var sérlega fjölbreytt og skemmtileg með hringekjutónleikum, Nótutónleikum, tónleikum eldri nemenda og barnamenningahátíð.
Píanó-hringekjutónleikar voru haldnir í hátíðarsal Stekkjaskóla 15. apríl. Á tónleikunum fengu píanónemendur tækifæri til að koma fram í samspilsatriðum, sem er ekki svo algengt í píanónámi. Voru tónleikarnir mjög finir og runnu ljúflega i samfellu og hnökralaust. Píanistarnir voru glaðir og kátir að fá að taka þátt í samspili og áhorfendur áhugasamir og fögnuðu með kröftugu lófataki að lokinni hringekjunni.

Glaðir píanónemendur að afloknum píanó-hringekjutónleikum.
Svæðistónleikar Nótunnar fóru fram í Salnum í Kópavogi 18. apríl. Á þessum tónleikum sameinuðust nemendur frá Suðurlandi, Suðurnesjum og Kraganum. Sérlega glæsilegir tónleikar og gaman að fá tækifæri til að heyra svo fjölbreytt atriði frá mörgum skólum. Fyrir hönd Tónlistarskóla Árnesinga léku Gunnlaugur Ernst Hákonarson á selló, Daníel Ingvarsson á saxófónn og Söngfuglar ásamt meðleikurum. Öll stóðu þau sig einstaklega vel og voru sér og skólanum til mikils sóma.

Örlygur Benediktsson og Daníel Zbigniew Zuchowicz og Gunnlaugur Elmar, Margrét, Eiður, Söngfuglar og Margrétar S. Stefánsd.
Tónleikar eldri nemenda eru tileinkaðir nemendum sem eru 20 ára og eldri. Það er alltaf skemmtileg stemming á þessum tónleikum og voru tónleikarnir í ár sem haldnir voru 21. apríl, reglulega flottir.

Málmblásarakvartett á tónleikum eldri nemenda.
Barnamenningarhátíð var haldin hátíðleg í Árborg 22. apríl. Blásarasveitir Tónlistarskóla Árnesinga á Selfossi tóku þátt í hátíðinni og komu fram í miðbænum í miklu blíðskaparveðri undir stjórn Jóhanns I. Stefánssonar.

Blásarasveitir léku tvö lög fyrir utan Konungskaffi, við upphaf dagskrár.
Innilegar þakkir til nemenda og kennara fyrir öflugt og gefandi starf – og takk foreldrar og kennarar fyrir myndir frá viðburðunum!
/Helga Sighv.