2026-04-24T00:00:00+00:00
Loading Events

Skólaslit verða á kennslustöðum sem hér segir:

21. maí kl. 16:00 í BES Stokkseyri – nemendur frá Stokkseyri og Eyrarbakka

21. maí kl. 18:00 í Þorlákskirkju – nemendur úr Þorlákshöfn

 

22. maí kl. 15:00 í Félagsheimilinu Árnesi – nemendur úr Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi

22. maí kl. 16:00 í Félagsheimilinu Árnesi – nemendur úr Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi

 

26. maí kl. 16:00 í Félagsheimilinu Aratungu – nemendur úr Reykholtsskóla

26. maí kl. 18:00 í Skálholtskirkju – nemendur úr Bláskógaskóla Laugarvatni og Grímsnes- og Grafningshreppi

26. maí kl. 18:00 í Hveragerðiskirkju – nemendur úr Hveragerði og Ölfusi

 

27. maí kl. 16:00 í Félagsheimilinu Þjórsárveri – nemendur úr Flóahreppi

27. maí kl. 18:00 í Selfosskirkju – nemendur frá Selfossi

 

Hver skólaslit eru um 1 klst. löng. Flutt eru tónlistaratriði og nemendur sem ljúka stigs- eða áfangaprófum fá skírteini afhent.

 

Skólaslit kennslustaða eru með ýmsu móti.

– Á minni kennslustöðunum eru skólaslit jafnframt vortónleikar nemendanna og koma nær allir nemendur fram.

– Í Hveragerði og Þorlákshöfn fá kennarar úthlutað ákveðnum mínútufjölda m.v. fjölda nemenda og

– á Selfossi koma aðallega fram hljómsveitir og samspilshópar.

Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!