Kæru foreldrar/forráðamenn,
Við hlökkum mikið til að hefja nýtt skólaár með ykkur.
Um leið og við viljum þakka ykkur fyrir að hafa samband og senda ábendingar um gjaldfærslur í SportAbler viljum við láta ykkur vita að vegna villu sem kom upp í kerfinu hjá okkur hafa greiðslur ekki borist inn í Abler. Við erum að vinna í þessu og vonandi verður þetta allt saman komið í lag sem fyrst – endilega fylgist með í SportAbler.
Skólastarf hefst samkvæmt stundatöflu mánudaginn 31. ágúst og kennarar skólans verða í sambandi við nemendur í næstu viku.
Með hlýrri kveðju,
