Árlega tekur Tónlistarskóli Árnesinga á móti nemendahópum frá Þýskalandi sem eru í umönnunarnámi í Berlín. Í Íslandsför sinni heimsækja nemendurnir ýmsa skóla og stofnanir í Árnessýslu og fá upplýsingar um starfsemina.
Þann 22. október sl. gladdi 17 manna hópur okkur með komu sinni. Þetta voru áhugasamir nemendur og gaman að segja þeim frá skólanum okkar og uppfræða þá um hve öflugt tæki tónlistin er í allri umönnun.
Eftir tónlistarskólaheimisóknina hélt hópurinn svo upp að Úlfljótsvatni að hitta skátana. – Við þökkum nemendunum og kennara þeirra innilega fyrir komuna 🙂
/Helga Sighv.
