2024-04-27T00:00:00+00:00
Loading Events
This event has passed.

Jólaspilamennska. Síðustu tvo kennsludaga fyrir jólafrí (19. og 20. desember) fellur niður hefðbundin kennsla, en í staðinn fara kennarar með nemendur sína út í samfélagið og leika jólalög og aðra fallega tónlist fyrir unga sem aldna samborgara.

Það er hefð fyrir því að umbreyta kennslu síðustu tveggja kennsludaga fyrir jólafrí í spilamennsku úti í bæ. Kennarar flögra þá með nemendur sína út í samfélagið og leika fyrir fólk á öllum aldri. Má nefna hjúkrunar- og elliheimili, samkomur félagasamtaka, verslanir, leikskóla og þátttöku í litlu-jólum grunnskólanna.

Því miður náum við ekki að fara með alla okkar nemendur svona út í bæ, en kennarar hafa í nógu að snúast. Þetta tónleikahald getur verið hvenær sem er í desember, allt eftir því hvað hentar á stöðunum sem við heimsækjum. – Það er mjög ánægjulegt að geta með þessu móti opnað skólann út í samfélagið og glatt samborgarana.

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi