2024-04-25T00:00:00+00:00
Loading Events
This event has passed.

Dagur tónlistarskólanna. Á Degi tónlistarskólanna 7. febrúar, efna tónlistarskólarnir til árlegrar hátíðar um allt land. Meðal viðburða má nefna opið hús, tónleika, hljóðfærakynningar og ýmiskonar námskeið auk þess sem nemendur heimsækja vinnustaði, heilbrigðisstofnanir og aðra skóla og flytja tónlist.

Á haustþingi Samtaka tónlistarskólastjóra árið 2019 var samþykkt að Dagur tónlistarskólanna skyldi vera 7. febrúar, í tilefni af fæðingardegi Gylfa Þ. Gíslasonar, sem var menntamálaráðherra frá 1956 – 1971. Úr greinargerð með tillögunni: Gylfi Þ. Gíslason var mikill áhrifavaldur hvað varðar tónlistarkennslu og beitti sér fyrir umbótum á því sviði. Með því að Dagur tónlistarskólanna sé á fæðingardegi Gylfa Þ. Gíslasonar, heiðrum við minningu Gylfa og sýnum verkum hans í þágu tónlistarskólanna verðskuldaða virðingu.

 

Í tilefni af Degi tónlistarskólanna 2023 mun Tónlistarskóli Árnesinga standa fyrir tónleikadegi laugard. 11. febrúar, með 6 tónleikum sem dreifast um Árnessýslu. Nánari upplýsingar um tímasetningar koma þegar nær dregur, en tónleikar verða haldnir á Selfossi, í Þorlákshöfn, Hveragerði og Aratungu.

Þema tónleikanna í ár verður Haf og sjómennska. Þematónleikar skipa alltaf sérstakan sess í tónleikahaldi, því þar má heyra fjölmörg lög sem annars eru fáséð á nemendatónleikum. Þá má á öllum tónleikunum sjá og heyra þversnið af hljóðfæravali skólans og söng.

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi