2024-04-30T00:00:00+00:00
Loading Events
This event has passed.

FRAMHALDSPRÓFSTÓNLEIKAR

Helga Höeg Sigurðardóttir lýkur framhaldsprófi í píanóleik frá Tónlistarskóla Árnesinga með opinberum tónleikum í sal tónlistarskólans Eyravegi 9 á Selfossi, 22. mars kl. 17:15.

 

Hvetjum við Sunnlendinga til að nýta sér þetta góða tækifæri til að hlýða á glæsilega tónleika, enda liggur mikil vinna að baki þegar kemur að útskrift frá skólanum.

 

Á dagskrá eru verk eftir Bach, Beethoven, Bartók, Rachmaninoff, Dvorák og Brahms.

Meðleikur á fiðlu: Eyrún Huld Ingvarsdóttir.

Kennari Helgu er Miklós Dalmay.

 

Aðgangur að tónleikum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

 

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi