2024-05-18T00:00:00+00:00
Loading Events
This event has passed.

FRAMHALDSPRÓFSTÓNLEIKAR

Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir lýkur framhaldsprófi í söng frá Tónlistarskóla Árnesinga með opinberum tónleikum í Hveragerðiskirkju, 8. maí kl. 18:00

Við hvetjum Sunnlendinga til að nýta sér þetta góða tækifæri til að hlýða á glæsilega tónleika, enda liggur mikil vinna að baki þegar kemur að útskrift frá skólanum.

Meðleikur: Ester Ólafsdóttir píanó og orgel, Laufey Dóra Friðbjarnardóttir söngur og sönghópur.

Á dagskrá eru fjölbreytt verk eftir íslensk og erlend tónskáld og textahöfunda.

Kennari Sigurrósar Lilju er Margrét S. Stefánsdóttir.

 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis – Verið öll hjartanlega velkomin!

 

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi