Vetrarfrí
Öll kennsla fellur niður í tónlistarskólanum vikuna 23. – 27. febrúar. 23.– 24. febrúar eru samræmdir frídagar við stærstu grunnskóla Árnessýslu og FSu, en 25. – 27. febrúar eru frídagar vegna styttingar vinnutíma tónlistarskólakennara.
Starf skólastjóra Tónlistarskóla Árnesinga laust til umsóknar – umsóknarfrestur til og með 14. apríl
Af vef ráðningarstofunnar www.mognum.is SKÓLASTJÓRI TÓNLISTARSKÓLA ÁRNESINGA - 50skills - - - SKÓLASTJÓRI TÓNLISTARSKÓLA ÁRNESINGA Árborg - Fullt starf Umsóknarfrestur: 14.04.2026 Tónlistarskóli Árnesinga leitar að öflugum leiðtoga til að stýra faglegu starfi og rekstri eins stærsta og umsvifamesta tónlistarskóla landsins. Skólastjóri ber ábyrgð á faglegu starfi, daglegum rekstri og þróun skólans og leiðir öflugt teymi starfsfólks. Helstu verkefni og ábyrgð Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi skólans Leiða faglegt starf skólans og stuðla að áframhaldandi þróun tónlistarnáms Mannauðs- og launamál Samskipti við sveitarfélög, grunnskóla og aðra samstarfsaðila Áætlanagerð og upplýsingagjöf Vinna með starfsmönnum skólans að stefnumótun og þróun starfseminnar Ýmis [...]
Framhaldsdeildartónleikar í Hveragerðiskirkju 16. mars
Framhaldsdeildartónleikar verða haldnir mánudaginn 16. mars kl. 18:15 í Hveragerðiskirkju. Flytjendur hafa allir lokið miðprófi (5. stigi) á sitt hljóðfæri. Dagskrá er fjölbreytt og gaman að fylgjast með leikni nemendanna þegar hér er komið í námi. Aðgangur er ókeypis - Verið öll hjartanlega velkomin!
Miðdeildartónleikar í sal skólans 17. mars
Miðdeildartónleikar verða haldnir þriðjudaginn 17. mars kl. 18:15 í sal skólans, Eyravegi 9, Selfossi Dagskrá er fjölbreytt að vanda og koma nemendur fram á hin ýmsu hljóðfæri. Flytjendur hafa allir lokið grunnprófi (3. stigi) á sitt hljóðfæri og alltaf gaman að fylgjast með þessum þróttmikla hópi. Aðgangur er ókeypis - Verið öll hjartanlega velkomin!
Prófadagar – kennsla fellur niður
Prófadagar verða 24.-26. mars 2026. Á prófadögum fellur kennsla niður, en kennarar eru á ferð og flugi að fylgja nemendum í próf og að dæma próf. Ekki taka allir nemendur próf á prófadögum, heldur meta kennarar hvenær nemendur eru tilbúnir að þreyta næsta stigs- eða áfangapróf. Nánari upplýsingar um námsmat í Tónlistarskóla Árnesinga má finna hér: Námsmat — Tónlistarskóli Árnesinga
Páskafrí
Páskafrí 28. mars - 6. apríl. Öll kennsla fellur niður þessa daga. Kennsla hefst á ný eftir páska þriðjud. 7. apríl.
Krakkabarokk á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars
Átta blokkflautunemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga taka þátt í Krakkabarokkhátíð á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars kl. 15:00, ásamt fjölda annarra hljóðfæranemenda og kóra. Frítt inn, en hér er hægt að ná sér í (ókeypis) miða: https://www.harpa.is/vidburdir/20144 Upplýsingar af vef Hörpu: Krakkabarokk í Eldborg 29. mars kl. 15:00–16:00 Eldborg, Harpa Aldur: 5–15 ára Tungumál: Íslenska – hægt að njóta óháð tungumáli Aðgangur: Ókeypis – skráning á harpa.is Krakkabarokk í Eldborg eru fjölskyldutónleikar þar sem Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk flytur fjölbreytta tónlist frá barokk- og endurreisnartímanum í félagi við tónlistarnemendur og kórsöngvara af höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Norðurlandi eystra. Á tónleikunum má heyra einleik, samleik og kórsöng með undirleik hátíðarhljómsveitar [...]
Vinavika 13. – 17. apríl
Við efnum í fyrsta sinn til VINAVIKU 13. – 17. apríl. Í þessari viku mega nemendur bjóða vini/vinkomu með sér í tíma. Vinavikan er nýjung í skólastarfinu og spennandi að sjá hvernig til tekst. – Endilega nýtið þetta tækifæri til að mæta í félagsskap vinar 😊
Píanó-hringekjutónleikar í Stekkjaskóla 15. apríl
Píanó-hringekjutónleikar verða haldnir miðvikud. 15. apríl kl. 18:00 í Hátíðarsal Stekkjskóla, Selfossi Á tónleikunum koma fram píanónemendur á öllum stigum og leika fjórhent og sexhent lög á píanó. Verður verkefnum fléttað saman í skemmtilegt ferli. Aðgangur er ókeypis – Verið öll hjartanlega velkomin!
Nótutónleikar í Salnum Kópavogi 18. apríl
Nótutónleikar í Salnum, Kópavogi, laugard. 18. apríl kl. 13:00 Á svæðistónleikum skólans í febrúar fengu áheyrendur tækifæri til að velja þau atriði sem þeim þóttu mest heillandi. Þau atriði sem flest stig fengu fóru í „Nótupottinn“ og svo féll það í hlut deildarstjóranna að velja atriði til flutnings á Nótutónleikunum í Kópavogi (uppskeruhátíð tónlistarskóla á Suðurlandi, Suðurnesjum og í Kraganum). Eftirtalin þrjú atriði taka þátt fyrir hönd Tónlistarskóla Árnesinga: Gunnlaugur Ernst Hákonarson, selló Daníel Ingvarsson, saxófónn Söngfuglar Tónlistarskóla Árnesinga Við óskum nemendum og kennurum til hamingju með að vera valin til þátttöku í þessum skemmtilega viðburði.