Events
-
-
Sumardagurinn fyrsti – frí
Öll kennsla fellur niður í tónlistarskólanum, á Sumardagurinn fyrsta 22. apríl.
-
-
Síðasti kennsludagur 26. maí – engin skólaslit
Vegna Covid verða ekki hefðbundin skólaslit í vor. Þess í stað verður kennsla til og með 26. maí. Í þessum síðustu tímum vetrarins: - afhenda kennarar nemendum prófskírteini, - innheimta leiguhljóðfæri frá nemendum sem hætta námi, - haldnir verða nemendatónleikar ef ekki hefur tekist að ljúka þeim fyrr og - þá má búast við að einhverjir kennarar brjóti upp hefðbundna tíma með námskeiðum fyrir nemendur o.fl.
-
-
Umsóknir nýnema um skólavist 2021 -2022
Nú er rétti tíminn til að sækja um nám fyrir nýnema veturinn 2021-2022. Umsóknina finnið þið undir hnappinum UMSÓKN UM SKÓLAVIST, efst á heimsíðunni. Athugið að sækja má um skólavist allt árið. Þeir sem sækja um fyrir 1. júní eru í fyrsta hópnum sem tekinn er inn, en við bætum áfram við nemendum eftir því sem rúm leyfir.
-
Kennsla hefst
Einkatímar hefjast samkvæmt stundaskrá mánudaginn 30. ágúst 2021.
-
-
Hóptímar hefjast
Allir hóptímar (tónfræði, hljómsveitir, samspil) hefjast frá og með mánud. 6. september, samkvæmt stundaskrá.
-
Haustþing kennara 24. sept. – öll kennsla fellur niður
Föstud. 24. sept. sækja kennarar Tónlistarskóla Árnesinga, haustþing tónlistarskólakennara. Öll kennsla fellur niður þennan dag.
-
-
Haustfrí 14. – 17. október
Öll kennsla fellur niður fimmtud. 14. og föstud. 15. október vegna haustfrís í tónlistarskólanum. Haustfríið kemur á sömu daga og hjá flestum grunnskólum í Árnessýslu. Sjá skóladagatal: Tonlistarskoladagatal-2021-2022-Netid-1.pdf (tonar.is)
-
-
Rytmískir deildatónleikar 5. nóvember
Rytmískir deildartónleikar verða í sal tónlistarskólans, Eyravegi 9, Selfossi 5. nóv. kl. 17:00. Fram koma nemendur í rytmísku námi, bæði einleikarar og hópar. Tónleikarnir verða um klukkustundar langir. Allir hjartanlega velkomnir.
-
Píanódeildartónleikar 11. nóvember
Píanódeildartónleikar verða í Selfosskirkju 11. nóvember kl. 18:00. Fram koma píanónemendur allt frá byrjendum til lengra kominna. Tónleikarnir verða um klukkustundar langir. Allir hjartanlega velkomnir.
-
Blokkflautudeildartónleikar 15. nóvember
Blokkflautudeildartónleikar verða í Barnaskólanum á Stokkseyri mánudaginn 15. nóv. kl. 18:00. Fram koma bæði einleikarar og samspil. Tónleikarnir verða um klukkustundarlangir. Allir hjartanlega velkomnir.