2026-10-23T00:00:00+00:00

Events

Views Navigation

Event Views Navigation

Today
  • Prófadagar 21. og 22. mars 2023

    Prófadagar 21. og 22. mars Kennsla fellur niður á prófadögum. Ekki taka allir nemendur próf á prófadögum, en það eru kennarar sem meta hvenær nemendur eru tilbúnir til að taka næsta stigspróf. Ef spurningar vakna biðjum við nemendur/foreldra að setja sig í samband við kennara.

  • Smiðjuvikan 27. – 31. mars – námskeið/smiðjur í stað kennslu

    Í síðustu viku marsmánaðar brjótum við upp hefðbundna kennslu og bjóðum nemendum okkar upp á alls konar námskeið eða smiðjur í staðinn.   Miðað er við að: Nemendur í hálfu námi sæki a.m.k. 1 klst. smiðju Nemendur í heilu námi sæki a.m.k. 2 klst. af smiðjum. - Nemendur sæki a.m.k. eina smiðju í heimasveit, en geta valið til viðbótar smiðju eftir óskum/áhugasviði.   Skráning í smiðjur fer fram í gegnum kennara, en HÉR má sjá hvaða smiðjur eru í boði á hverjum kennslustað og hvenær. (Hver kennslustaður er í sér flipa). Upplýsingar um viðfangsefni hverrar smiðju má sjá með því að setja [...]

  • Páskafrí

    Páskafrí 1. – 11. apríl. ATH. að páskafrí tónlistarskólans er einum degi lengra en hjá grunnskólunum. Kennsla hefst aftur eftir páskafrí miðvikudaginn 12. apríl.

  • Frí 20. og 21. apríl

    Kennsla fellur niður 20. og 21. apríl Fimmtud. 20. apríl - Sumardagurinn fyrsti Föstud. 21. apríl – Frídagur í tónlistarskólanum vegna styttingar vinnutíma

  • Framhaldsprófstónleikar Hildar Tönju í Hveragerðiskirkju 15. maí

    Hildur Tanja Karlsdóttir lýkur framhaldsprófi í fiðluleik frá Tónlistarskóla Árnesinga með opinberum tónleikum í Hveragerðiskirkju 15. maí kl. 18:00                            Hvetjum við Sunnlendinga til að nýta sér þetta góða tækifæri til að hlýða á glæsilega tónleika, enda liggur mikil vinna að baki þegar kemur að útskrift frá skólanum. Á dagskrá eru verk eftir Bach, Mozart, Prokofiev, Grieg og Williams. Meðleikarar: Miklós Dalmay píanó og Elísabet Anna Dudziak fiðla. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

  • Skólaslit

    Skólaslit eru með ýmsu móti á kennslustöðum og fer það eftir nemendafjölda. - Á minnstu kennslustöðunum (Kerhólsskóla, Laugarvatni, Reykholti, Flúðum, Þjórsárskóla, Stokkseyri/Eryarbakka og Flóaskóla) eru skólaslitin jafnframt vortónleikar, þar sem allir nemendur koma fram. - Í Þorlákshöfn og Hveragerði eru valin nokkur atriði frá öllum kennurum á skólaslit, en hver kennari heldur sérstaka vortónleika fyrir sína nemendur. - Á Selfossi koma aðallega fram valdir samspilshópar og hljómsveitir, en hver kennari heldur vortónleika fyrir sína nemendur.   Skólaslit mán. 22. maí 16:30 REYKHOLT í félagsheimilinu Aratungu 17:00 ÞJÓRSÁRSKÓLI í félagsheimilinu Árnesi 18:00 LAUGARVATN + KERHÓLSSKÓLI í Skálholtskirkju   þri. 23. maí 15:30 [...]

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi