2026-10-23T00:00:00+00:00

Events

Views Navigation

Event Views Navigation

Today
  • Haustfrí 13. – 17. október

    Dagana 13. – 17. október er haustfrí í tónlistarskólanum. Öll kennsla fellur niður þessa daga. Sjá: tonlistarskoladagatal-2022-2023.pdf (tonar.is) Frídagarnir 13. og 14. október falla á sömu daga og í flestum grunnskólum Árnessýslu, FSu og ML. Mánudagurinn 17. október er einn af fimm frídögum sem falla á skólaárið vegna styttingar vinnutíma tónlistarskólakennara.

  • Kósý fiðlukvöld í Selfosskirkju

    Kósý fiðlukvöld í Selfosskirkju | Viðburðadagatal | Sveitarfélagið Árborg (arborg.is) Tónlistarskóli Árnesinga tekur þátt í Menningarmánuði í Árborg í október. Miðvikud. 26. október 2022 19:00 - 20:00 leika fiðlunemendur Maríu Weiss ljúfa tóna fyrir gesti Selfosskirkju. Meðleikari er Miklos Dalmay. Allir hjartanlega velkomnir!

  • Sellóhópur og vinir í Bókasafni Árborgar

    Sellóhópur og vinir spila á Hrekkjavöku | Bókasafn Árborgar, Selfossi | Viðburðadagatal | Sveitarfélagið Árborg (arborg.is) Tónlistarskóli Árnesinga tekur þátt í Menningarmánuði í Árborg í október.   Mánud. 31. október 2022, kl. 16:15 - 17:00 "Í tilefni Hrekkjavöku halda strengjanemendur frá Tónlistarskóla Árnesinga tónleika á Bókasafni Árborgar, Selfossi. Með þeim verða kennararnir Guðmundur Kristmundsson á víólu og Uelle Hahndorf á selló. Meðleikari á píanó verður Ester Ólafsdóttir".  Allir hjartanlega velkomnir!

  • Blásaradeildartónleikar 4. nóv. í Þorlákskirkju

    Blásaradeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir í Þorlákskirkju föstud. 4. nóvember kl. 18:00 Á tónleikunum koma fram blásarasveitir skólans auk smærri samspilshópa. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

  • Blokkflautudeildartónleikar 7. nóv. í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi

    Blokkflautudeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir í sal skólans að Eyravegi 9, Selfossi (3. hæð), mánud. 7. nóvember kl. 18:30 Á tónleikunum koma fram blokkflautusveitir skólans auk smærri samspilshópa. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

  • Gítardeildartónleikar 9. nóv. í safnaðarheimili Selfosskirkju

    Gítardeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir í safnaðarheimili Selfosskikrju, miðvikud. 9. nóvember kl. 18:00 Á tónleikunum koma fram gítarsveitir og Suzuki-gítarsveitir skólans. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

  • Strengjadeildartónleikar 10. nóv. í Selfosskirkju

    Strengjadeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir í Selfosskirkju fimmtud. 10. nóvember kl. 17:00 Á tónleikunum koma fram strengjasveitir og Suzuki-samspilshópar skólans. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

  • Rytmískir deildartónleikar 11. nóv. í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi

    Rytmískir deildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi (3. hæð), föstud. 11. nóvember kl. 17:00 Á tónleikunum koma fram rytmískar hljómsveitir skólans, slagverksleikarar o.fl. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

  • LÖG GUNNARS ÞÓRÐARSONAR – Tónleikar 19. nóv. í íþróttahúsinu Laugarvatni

    LÖG GUNNARS ÞÓRÐARSONAR Tónleikar í íþróttahúsinu Laugarvatni 19. nóvember 2022, kl. 14:00   Tónlistarskóli Árnesinga stendur fyrir stórtónleikum á Laugarvatni, laugard. 19. nóvember, þar sem flutt verða lög Gunnars Þórðarsonar. Þetta er í þriðja sinn sem skólinn setur upp svo stórt samstarfsverkefni hljóðfæra- og söngdeilda, en árið 2016 var viðfangsefnið Töfraflauta Mozarts og árið 2019 var sett upp Allskynsóperan með tónlist úr ýmsum áttum. Nú er komið að lögum Gunnars Þórðarsonar sem hafa fylgt íslensku þjóðinni í áratugi, en fram koma söngvarar, píanóleikarar, strengja-, blásara-, gítar-, blokkflautu- og rytmískar hljómsveitir skipaðar bæði nemendum og kennurum. Alls eru flytjendur um 130 talsins. [...]

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi