2026-10-23T00:00:00+00:00

Events

Views Navigation

Event Views Navigation

Today
  • Starfsdagur 10. október – kennsla fellur niður

    Kennsla fellur niður fimmtud. 10. október vegna starfsdags. Þennan dag sækja kennarar fundi og námskeið á haustþingi tónlistarskólakennara fyrir Suðurland og Suðurnes. Þingið er að þessu sinni haldið á Eyrarbakka.

  • Haustfrí

    Haustfrí Tónlistarskóla Árnesinga verður dagana 17. - 21. október. Kennsla fellur niður þessa daga.

  • Blásaradeildartónleikar í Sunnulækjarskóla

    Sunnulækjarskóla Norðurhólum 1, Selfossi

    Blásaradeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir í Sunnulækjarskóla miðvikud. 30. október 2019, kl. 18:00. Á tónleikunum koma fram blásarasveitirnar fjórar (frá Selfossi og Þorlákshöfn), ásamt fjölda einleikara og smærri samspilshópa. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

  • Blokkflautudeildartónleikar í Sunnulækjarskóla

    Blokkflautudeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir mánud. 4. nóvember 2019 kl. 19:00, í Sunnulækjarskóla á Selfossi. Á tónleikunum koma fram yngri og eldri blokkflautusveitir, Suzukihóparnir þrír (Flautustubbar, Flautusnúðar & Flautusnillingar), auk einleiksatriða. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

  • Gítardeildartónleikar í Listasafni Árnesinga í Hveragerði

    Gítardeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir þriðjud. 5. nóvember 2019, kl. 18:00, í Listasafni Árnesinga, Austurmörk 21 í Hveragerði. Á tónleikunum koma fram allar gítarsveitir og Suzuki-gítarhópar skólans. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

  • Strengjadeildartónleikar í Selfosskirkju

    Strengjadeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir miðvikud. 6. nóvember 2019 kl. 18:00, í Selfosskirkju. Á tónleikunum koma fram yngri og eldri strengjasveitir, fiðlu-, víólu- og selló-Suzukihópar. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

  • Píanódeildartónleikar í Þorlákskirkju

    Píanódeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir fimmtud. 7. nóvember 2019 kl. 18:00, í Þorlákskirkju. Á tónleikunum koma fram píanónemendur á öllum aldri og námsstigum, sem leika einleik, fjórhent og sexhent. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

  • Rytmískir deildatónleikar í sal skólans Eyravegi 9 á Selfossi

    Rytmískir deildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir föstud. 8. nóvember 2019 kl. 17:30, í sal skólans Eyravegi 9 á Selfossi (3. hæð). Á tónleikunum koma fram allar rytmískar sveitir skólans, auk ýmiskonar samleiks, einleikara og gesta úr öðrum deildum. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

  • Söngdeildartónleikar í Hveragerðiskirkju

    Söngdeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir mánud. 11. nóvember 2019 kl. 18:00, í Hveragerðiskirkju. Á tónleikunum fléttast saman einsöngur og samsöngur í fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

  • Píanóhringekja – heimsókn

    Píanónemendur fá til sín góða gesti þann 16. nóvember, þegar um 30 píanónemendur Tónskóla Sigursveins koma í heimsókn. Nemendur beggja skóla æfa saman fjórhent og sexhent lög, sem verða svo flutt á tónleikum kl. 13:00 sama dag, í sal skólans að Eyravegi 9 á Selfossi.

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi