Events
-
-
Kennsla hefst
Kennsla hefst 5. janúar 2021 skv. stundaskrá. Allt hópastarf fer líka af stað 5. janúar. Við höldum uppi öllum fyrri smitvörnum – og nú skiptir máli að halda út og vanda sig áfram :) - Vandaður handþvottur - 16 ára og eldri noti grímur (undanþegnir eru blásara- og söngnemendur í tímum). - Miðum áfram við að Suzuki-foreldrar geti mætt í einkatíma með börnum sínum og að foreldrar 6 ára og yngri megi koma með í hóptíma. - Grímuskylda foreldra. Sjá nánar meðfylgjandi reglugerð sem gildir 1.1.2021 - 28.2.2021: B_nr_1306_2020
-
Foreldraheimsóknavika – rafræn eða í síma
Foreldraheimsóknavika 11. - 15. janúar. Foreldrar mæta ekki í kennslustund, en kennarar hafa samband og: - bjóða foreldrum að mæta rafrænt í tíma eða - hringja í foreldra, til að fara yfir miðsvetrarmatið og ræða um verkefni vorannar (hvort stefnt sé á próf, upptökur eða annað). Ath. – foreldrum er líka velkomið að hafa samband að fyrra bragði.
-
-
Öskudagur – frí vegna starfsdags kennara
Miðvikud. 17. febrúar (öskudag) fellur niður öll kennsla í tónlistarskólanum vegna starfsdags kennara.
-
-
Prófadagar – öll kennsla fellur niður
Öll kennsla fellur niður á prófadögum 15. - 17. mars. Upplýsingar um hvort nemandi fari í próf fást hjá kennara, en ekki taka allir nemendur próf á þessum dögum.
-
Páskafrí
Páskafrí 27. mars - 5. apríl. Kennsla hefst aftur þriðjud. 6. apríl skv. stundaskrá
-
-
Sumardagurinn fyrsti – frí
Öll kennsla fellur niður í tónlistarskólanum, á Sumardagurinn fyrsta 22. apríl.
-
-
Síðasti kennsludagur 26. maí – engin skólaslit
Vegna Covid verða ekki hefðbundin skólaslit í vor. Þess í stað verður kennsla til og með 26. maí. Í þessum síðustu tímum vetrarins: - afhenda kennarar nemendum prófskírteini, - innheimta leiguhljóðfæri frá nemendum sem hætta námi, - haldnir verða nemendatónleikar ef ekki hefur tekist að ljúka þeim fyrr og - þá má búast við að einhverjir kennarar brjóti upp hefðbundna tíma með námskeiðum fyrir nemendur o.fl.
-
-
Umsóknir nýnema um skólavist 2021 -2022
Nú er rétti tíminn til að sækja um nám fyrir nýnema veturinn 2021-2022. Umsóknina finnið þið undir hnappinum UMSÓKN UM SKÓLAVIST, efst á heimsíðunni. Athugið að sækja má um skólavist allt árið. Þeir sem sækja um fyrir 1. júní eru í fyrsta hópnum sem tekinn er inn, en við bætum áfram við nemendum eftir því sem rúm leyfir.
-
Kennsla hefst
Einkatímar hefjast samkvæmt stundaskrá mánudaginn 30. ágúst 2021.
-
-
Hóptímar hefjast
Allir hóptímar (tónfræði, hljómsveitir, samspil) hefjast frá og með mánud. 6. september, samkvæmt stundaskrá.