2024-04-18T00:00:00+00:00
Loading Events
This event has passed.

Miðdeildartónleikar verða haldnir mánud. 25. mars 

í sal skólans Eyravegi 9 Selfossi.

 

Þátttaka er mjög góð í ár og verða að þessu sinni haldnir tvennir tónleikar:

Fyrri tónleikarnir kl. 18:30

Seinni tónleikarnir kl. 19:45

 

Á tónleikunum koma fram nemendur sem lagt hafa að baki fyrsta hluta tónlistarnáms síns.

Miðdeildartónleikar eru alltaf metnaðarfullir og fjölbreyttir. Gefst Sunnlendingum gott tækifæri til að skyggnast inn í öfluga starfsemi skólans.

Aðgangur er ókeypis og öllum opinn

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi