„Burtu með fordóma“-fjölskyldutónleikarnir 1. maí
2025-05-14T11:47:58+00:00Þann 1. maí tóku um 100 nemendur og kennarar Tónlistarskóla Árnesinga þátt í fjölskyldutónleikum með Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í íþróttahúsi Vallaskóla, sem kölluðust „Burtu með fordóma“. Á tónleikunum komu líka fram um 80 leikskólabörn úr Árborg og tvíeykið Gunni og Felix sáu um kynningar og sungu. Stjórnandi tónleikanna var Guðmundur Óli Gunnarsson.
Á tónleikunum voru flutt alls konar lög sem áttu það öll sameiginlegt að hvetja til vináttu og samvinnu. Var það mikið ævintýri fyrir bæði nemendur og kennara að fá tækifæri til að taka þátt í þessu stóra verkefni með Sinfóníuhljómsveit Suðurlands. Nemendur voru allir til mikillar fyrirmyndar – augljóst að þeir […]

[…]
[…]

