Skólareglur
1. Stundvísi er áskilin. Tilkynna ber forföll með góðum fyrirvara.
– Forföll nemenda undir 18 ára aldri skulu tilkynnt af foreldrum/forráðamönnum.
2. Almenn háttvísi er áskilin.
3. Nemandi komi vel undirbúinn í tíma.
4. Nemandi komi ekki með sælgæti í tíma.
5. Góð umgengni og góð meðferð hljóðfæra er áskilin.
6. Mæti nemandi ekki í tíma hefur kennari samband við foreldra/forráðamenn.
7. Nemanda ber að mæta á alla tónleika og í alla hóptíma (samspil, hljómsveit, tónfræði) sem honum eru ætlaðir.
8. Áfanga- og stigsprófsskírteini taka ekki gildi og eru ekki afhent fyrr en samsvarandi tónfræðagreinum er lokið.
9. Snjalltækjanotkun í tímum er ekki heimil nema tækin séu nýtt vegna kennslunnar. Símar skulu vera þannig staðsettir að þeir trufli ekki kennslu (t.d. í tösku eða úlpuvasa og á hljóðlausri stillingu).
10. Skólanum er ekki skylt að bæta upp einstakar kennslustundir er kunna að falla niður vegna veikinda kennara. Verði þau hins vegar langvinn, ber skólanum að gera allt sem í hans valdi stendur til að útvega forfallakennara.
11. Hafi nemandi hug á að koma fram opinberlega utan tónlistarskólans, skal hann gera það í samráði við tónlistarkennara sinn.