Framhaldsprófstónleikar Arnars Gísla og Elísabetar Önnu

Tveir nemendur útskrifuðust frá Tónlistarskóla Árnesinga í vor með framhaldspróf – og héldu tilheyrandi tónleika sem báðir fóru fram í Hveragerðiskirkju. Tónleikar beggja útskriftarnemendanna voru afskaplega glæsilegir og skemmtilegir. Áheyrendur sem fylltu Hveragerðiskirkju, klöppuðu nemendum og öðrum flyjendum lof í lófa í lok tónleikanna.

Þriðjud. 17. maí hélt Arnar Gísli Sæmundsson söngtónleika, en aðrir flytjendur voru Ester Ólafsdóttir píanómeðleikari og sönghópur undir stjórn Margrétar S. Stefánsdóttur, sem jafnframt var söngkennari Arnars Gísla.

 

Fimmtud. 19. maí hélt Elísabet Anna Dudziak, fiðlutónleika. Aðrir flytjendur voru Miklós Dalmay píanómeðleikari, Hildur Tanja Karlsdóttir og Eyrún Huld Ingvarsdóttir fiðluleikarar. Fiðlukennari Elísabetar Önnu til framhaldsprófs var María Weiss. Á myndinni er Elísabet Anna ásamt flytjendum og núverandi og fyrrverandi kennurum.

 

2022-09-29T15:37:10+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi