Glæsilegur árangur á svæðistónleikum Nótunnar

Sl. laugardag fóru fram svæðistónleikar Nótunnar fyrir Suðurland, Suðurnes og Kragann og átti Tónlistarskóli Árnesinga fjögur atriði á dagskrá. Á tónleikunum kepptu tónlistarskólanemendur um þátttökurétt á lokatónleikum Nótunnar, sem að þessu sinni verða haldnir í Hofi á Akureyri 6. apríl.

Nemendur Tónlistarskóla Árnesinga stóðu sig allir afskaplega vel og voru skólanum til mikils sóma. Þá var uppskeran ríkuleg, því tvö af atriðum skólans komust áfram á lokatónleikana.

Fulltrúar Tónlistarskóla Árnesinga í Hofi þann 6. apríl verða:

Eyrún Huld Ingvarsdóttir, sem leikur 1. þátt úr konsert í a-moll eftir Antonio Vivaldi á fiðlu, við undirleik Einars Bjarts Egilssonar og

Rytmasveitin No Sleep, en hana skipa Gylfi Þór Ósvaldsson rafgítar, Jakob Unnar Sigurðarson rafbassi, Valgarður Uni Arnarson rafgítar og Þröstur Ægir Þorsteinsson trommur. Þeir leika lagið Something eftir George Harrison.

Við óskum nemendum og kennurum innilega til hamingju með árangurinn og góðs gengis á Akureyri.

         

Þátttakendur á svæðistónleikum Nótunnar í dagskrárlok.

2019-03-18T10:44:15+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi