Nýir skólastjórnendur frá 1. ágúst 2026

Nýir skólastjórnendur hafa verið ráðnir að Tónlistarskóla Árnesinga frá 1. ágúst 2026. Það eru þau Stefán Haukur Gylfason skólastjóri og Pamela De Sensi aðstoðarskólastjóri.

Stefán Haukur er með B.M gráðu í klassískum gítarleik og meistaragráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands auk diplóma í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands.
Pamela er með meistaragráðu í þverflautuleik frá Listaháskólanum í Flórens og Listaháskólanum í Campobasso og meistaragráðu í kammertónlist frá Listaháskólanum í Róm.
Bæði eru þau með mikla og víðtæka reynslu af kennslu og stjórnun.

Við óskum nýjum skólastjórnendum innilega velfarnaðar í nýjum störfum og hlökkum til að sjá þá fersku vinda sem þau blása í segl tónlistarskólans!“

 

 

/Helga Sighv.

2026-06-18T10:18:50+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi