Tónleikaröð 9. – 13. febrúar

Svæðistónleikar 9. – 13. febrúar

Í febrúar höldum við nokkra svæðaskipta tónleika í tilefni af Degi tónlistarskólanna (sem er 7. febrúar).

Viðfangsefni þessara tónleika er Dýrin okkar. – Þeir nemendur sem taka þátt, fá upplýsingar hjá kennurum.

 

Tónleikarnir verða sem hér segir:

Mán. 9.2.2026Skálholtskirkja kl. 18:00 (nemendur úr Uppsveitum)

Þri.  10.2.2026Hveragerðiskirkja kl. 18:00 (nemendur úr Hveragerði og Ölfusi)

Mið. 11.2.2026 – Stekkjaskóli kl. 17:00 (nemendur úr Árborg + Flóa)

Mið. 11.2.2026 – Stekkjaskóli kl. 18:30 (nemendur úr Árborg + Flóa)

Fim. 12.2.2026 – Stekkjaskóli kl. 18:00 (nemendur úr Árborg + Flóa)

Fös. 13.2.2026 – Þorlákskirkja kl. 18:00 (nemendur úr Þorlákshöfn)

 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.

– Verið […]

Tónleikaröð 9. – 13. febrúar2026-01-14T15:09:12+00:00

Vetrarfrí

Öll kennsla fellur niður í tónlistarskólanum vikuna 23. – 27. febrúar.

23.– 24. febrúar eru samræmdir frídagar við stærstu grunnskóla Árnessýslu og FSu, en 25. – 27. febrúar eru frídagar vegna styttingar vinnutíma tónlistarskólakennara.

Vetrarfrí2026-02-17T15:52:51+00:00

Starfsdagur á öskudegi 18. febrúar

Kennsla fellur niður miðvikud. 18. febrúar vegna starfsdags kennara.

Daginn nýta kennarar til undirbúnings vorannar, með fundum og námskeiðum.

Starfsdagur á öskudegi 18. febrúar2026-01-14T14:10:11+00:00

Jólaspilamennska í desember

18. og 19. desember er kennsla óhefðbundin. Í stað kennslu þessa daga, fara kennarar með nemendur (eftir því sem við verður komið) út í samfélagið að leika jólalög og aðra fallega tónlist fyrir samborgarana. Sú spilamennska fer oft fram á öðrum dögum í desember, eða allt eftir því hvenær hægt er að heimsækja t.d. hjúkrunarheimili, leikskóla, verslanir, viðburði og annað sem óskað hefur verið eftir. Þá taka margir nemendur og kennarar tónlistarskólans virkan þátt í Litlu-jólum grunnskólanna þessa daga og leika undir dansi í kringum jólatré.

Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá jólaspilamennsku í desember.

[…]

Jólaspilamennska í desember2025-12-18T10:26:31+00:00

Styrkur frá Rótarý til kaupa á skjá

Í júní sl. fékk tónlistarskólinn 300.000 kr. styrk frá Rótarýklúbbi Selfoss, til kaupa á gagnvirkum skjá til tónfræðikennslu á Selfossi.

Magnús Hlynur Hreiðarsson formaður Rótarýklúbbsins, afhenti skjáinn formlega þann 2. desember, en skjárinn nýtist tónfræðikennurum mjög vel.

Tónlistarskóli Árnesinga þakkar Rótarý innilega fyrir stuðninginn!

Helga Sighvatsdóttir, skólastjóri

Styrkur frá Rótarý til kaupa á skjá2025-12-12T14:27:00+00:00

Hausttónleikar um alla sýslu

Hausttónleikar kennaranna eru flestir að baki, en þeir allra síðustu eiga eftir að teygja sig inn í desembermánuð.

Á hausttónleikum fá nemendur að njóta sín sem einleikarar og fá þjálfun í framkomu, hver hjá sínum kennara. Það er ótrúlega gaman að mæta á þessa ólíku tónleika á öllum kennslustöðum sýslunnar og sjá nemendur jafnt stíga sín fyrstu skref á sviði, eða leika flókin verk eftir margra ára tónlistarnám. – Allt er þetta jafn dýrmætt og hvert skref jafn mikilvægt 🙂

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá nokkrum hausttónleikanna.

/Helga Sighv.

  […]

Hausttónleikar um alla sýslu2026-01-06T11:36:12+00:00

Foreldraheimsóknavikan 12. – 16. janúar

Foreldraheimsóknavikan 12. – 16. janúar

Í þessum formlegu heimsóknartímum er farið yfir miðsvetrarmatið, sem er núna aðgengilegt í SpeedAdmin. Þá er líka horft fram á veginn og markmið vorannar skoðuð. Hvaða tónleikahald er framundan, er stefnt á próf eða ekki (kennari metur hvenær nemandi er tilbúinn til að taka næsta stig), hvað gengur vel og hvað verið er að vinna með þessa stundina.

* Auk þess að mæta í þessa formlegu heimsóknartíma eru foreldrar alltaf velkomnir í tíma og þurfa ekki að gera boð á undan sér.

Foreldraheimsóknavikan 12. – 16. janúar2025-11-18T13:34:41+00:00

Jólafrí

Jólafrí Tónlistarskóla Árnesinga stendur frá 20.12.2025 til 5.1.2026.

– mánud. 5. janúar 2026 er frí vegna starfsdags kennara,

– þriðjud. 6. janúar 2026 hefst kennsla á ný samkvæmt stundaskrá.

Jólafrí2025-11-18T11:42:21+00:00

Jólaspilamennska í desember

Jólaspilamennska. 18. og 19. desember er kennsla óhefðbundin. Í stað kennslu þessa daga, fara kennarar með nemendur (eftir því sem við verður komið) út í samfélagið að leika jólalög og aðra fallega tónlist fyrir samborgarana. Sú spilamennska fer oft fram á öðrum dögum í desember, eða allt eftir því hvenær hægt er að heimsækja t.d. hjúkrunarheimili, leikskóla, verslanir, viðburði og annað sem óskað hefur verið eftir. Þá taka margir nemendur og kennarar tónlistarskólans virkan þátt í Litlu-jólum grunnskólanna þessa daga og leika undir dansi í kringum jólatré.

Jólaspilamennska í desember2025-11-18T11:40:13+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi