Skólastjóri lítur um öxl

Skólastjóraskipti í Tónlistarskóla Árnesinga

Við þau tímamót að ég læt af störfum sem skólastjóri, er gaman að líta um öxl og horfa yfir farinn veg sl. 30 ár.

Ég hóf kennslu við Tónlistarskóla Árnesinga árið 1995, en hafði þá starfað í rúm 10 ár við Tónmenntaskóla Reykjavíkur og víðar.

Árið 2000 óskaði Róbert A. Darling, þá nýráðinn skólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga, eftir að ég tæki að mér hlutverk aðstoðarskólastjóra sem ég þáði. Þar með hófst mjög gefandi og skemmtilegt ævintýri við að byggja upp og þróa skólann í gegnum ótrúlegar breytingar á málefnum tónlistarskóla, sem og tæknilegar breytingar.

Þegar litið er til baka er í raun […]

Skólastjóri lítur um öxl2026-03-16T13:24:32+00:00

Tímamót – Stjórnemendaskipti við Tónlistarskóla Árnesinga 1. ágúst 2026

Það er komið að tímamótum í stjórn Tónlistarskóla Árnesinga, því 1. ágúst nk. láta bæði skólastjóri og aðstoðarskólastjóri af störfum.

Helga Sighvatsdóttir skólastjóri og Jóhann I. Stefánsson hafa bæði komið að stjórn tónlistarskólans sl. 25 – 26 ár. Helga sem aðstoðarskólastjóri 2000 – 2017 og skólastjóri frá 2018 – 2026 auk blokkflautukennslu og Jóhann sem stjórnandi á skrifstofu frá 2001 – 2017 og aðstoðarskólastjóri frá 2018 – 2026 auk málmblásturskennslu.

Helga hverfur til annarra verkefna, en Jóhann mun áfram sinna kennslu við skólann.

Skemmtileg og gefandi ár eru að baki, sem við þökkum innilega fyrir!

Helga og Jóhann

[…]

Tímamót – Stjórnemendaskipti við Tónlistarskóla Árnesinga 1. ágúst 20262026-03-12T13:48:16+00:00

Starf skólastjóra Tónlistarskóla Árnesinga laust til umsóknar – umsóknarfrestur til og með 14. apríl

Af vef ráðningarstofunnar www.mognum.is

SKÓLASTJÓRI TÓNLISTARSKÓLA ÁRNESINGA – 50skills

– – –

SKÓLASTJÓRI TÓNLISTARSKÓLA ÁRNESINGA

Árborg – Fullt starf
Umsóknarfrestur: 14.04.2026

Tónlistarskóli Árnesinga leitar að öflugum leiðtoga til að stýra faglegu starfi og rekstri eins stærsta og umsvifamesta tónlistarskóla landsins.

Skólastjóri ber ábyrgð á faglegu starfi, daglegum rekstri og þróun skólans og leiðir öflugt teymi starfsfólks.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi skólans
  • Leiða faglegt starf skólans og stuðla að áframhaldandi þróun tónlistarnáms
  • Mannauðs- og launamál
  • Samskipti við sveitarfélög, grunnskóla og aðra samstarfsaðila
  • Áætlanagerð og upplýsingagjöf
  • […]

Starf skólastjóra Tónlistarskóla Árnesinga laust til umsóknar – umsóknarfrestur til og með 14. apríl2026-04-13T17:46:14+00:00

Píanó-hringekjutónleikar í Stekkjaskóla 15. apríl

Píanó-hringekjutónleikar verða haldnir miðvikud. 15. apríl kl. ­­­­­18:00 í Hátíðarsal Stekkjskóla, Selfossi

Á tónleikunum koma fram píanónemendur á öllum stigum og leika fjórhent og sexhent lög á píanó. Verður verkefnum fléttað saman í skemmtilegt ferli.

Aðgangur er ókeypis – Verið öll hjartanlega velkomin!

Píanó-hringekjutónleikar í Stekkjaskóla 15. apríl2026-02-19T15:51:15+00:00

Miðdeildartónleikar í sal skólans 17. mars

Miðdeildartónleikar verða haldnir þriðjudaginn 17. mars kl. ­­­­­18:15 í sal skólans, Eyravegi 9, Selfossi

Dagskrá er fjölbreytt að vanda og koma nemendur fram á hin ýmsu hljóðfæri.

Flytjendur hafa allir lokið grunnprófi (3. stigi) á sitt hljóðfæri og alltaf gaman að fylgjast með þessum þróttmikla hópi.

Aðgangur er ókeypis – Verið öll hjartanlega velkomin!

Miðdeildartónleikar í sal skólans 17. mars2026-02-19T15:31:49+00:00

Framhaldsdeildartónleikar í Hveragerðiskirkju 16. mars

Framhaldsdeildartónleikar verða haldnir mánudaginn 16. mars kl. 18:15 í Hveragerðiskirkju.

Flytjendur hafa allir lokið miðprófi (5. stigi) á sitt hljóðfæri.

Dagskrá er fjölbreytt og gaman að fylgjast með leikni nemendanna þegar hér er komið í námi.

Aðgangur er ókeypis – Verið öll hjartanlega velkomin!

Framhaldsdeildartónleikar í Hveragerðiskirkju 16. mars2026-02-19T15:29:15+00:00

Páskafrí

Páskafrí 28. mars – 6. apríl. Öll kennsla fellur niður þessa daga.

Kennsla hefst á ný eftir páska þriðjud. 7. apríl.

Páskafrí2026-02-17T15:52:00+00:00

Prófadagar – kennsla fellur niður

Prófadagar verða 24.-26. mars 2026.

Á prófadögum fellur kennsla niður, en kennarar eru á ferð og flugi að fylgja nemendum í próf og að dæma próf.

Ekki taka allir nemendur próf á prófadögum, heldur meta kennarar hvenær nemendur eru tilbúnir að þreyta næsta stigs- eða áfangapróf.

Nánari upplýsingar um námsmat í Tónlistarskóla Árnesinga má finna hér: Námsmat — Tónlistarskóli Árnesinga

Prófadagar – kennsla fellur niður2026-02-17T15:52:23+00:00

Tónleikaröðin 9. – 13. febrúar mjög skemmtileg

Tónleikaröð Tónlistarskóla Árnesinga vikuna 9. – 13. febrúar, sem haldin var í tilefni af Degi tónlistarskólanna, var mjög skemmtileg.

Haldnir voru sex tónleikar alls í Skálholtskirkju, í Hveragerðiskirkju, í hátíðarsal Stekkjaskóla á Selfossi og í Þorlákskirkju. Þema tónleikanna var Dýrin okkar og mjög gaman að heyra þá fjölbreytni í efnisvali sem nemendur og kennarar göldruðu fram.

Innilegar þakkir til nemenda og kennara fyrir vel undirbúin verkefni og fallegan flutning!

/Helga Sighv.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá tónleikum vikunnar.

Skálholtskirkja 9.2.2026

[…]

Tónleikaröðin 9. – 13. febrúar mjög skemmtileg2026-02-16T16:47:45+00:00

Hljóðfærakynningar vorannar komnar í gang

Tónlistarskóli Árnesinga heimsækir 2. bekk allra grunnskóla í Árnessýslu, 5 sinnum á hverju vori. Grunnskólarnir eru 12 talsins og því eru þetta í allt 60 heimsóknir.

Verkefni okkar er að kynna öll hefðbundin hljóðfæri sem læra má á í tónlistarskólanum og fá nemendur stutta kynningu um hvert hljóðfæri fyrir sig. Að auki fá nemendur að heyra hvernig hljóðfærin hljóma, kennarar leika nokkur lög og að lokum syngjum við saman 1 -2 lög.

Það er alltaf gaman að koma í grunnskólana enda afskaplega vel tekið á móti tónlistarkennurunum.

Hér fyrir neðan eru myndir frá tveimur hljóðfærakynningum í liðinni viku. – Önnur fyrir Vallaskóla, í sal Tónlistarskólans […]

Hljóðfærakynningar vorannar komnar í gang2026-01-26T14:03:47+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi