Tónleikar eldri nemenda í sal skólans á Selfossi 21. apríl

Tónleikar eldri nemenda verða haldnir í sal skólans, Eyravegi 9 Selfossi, 21. apríl kl. 18:15.

Á tónleikunum koma fram nemendur sem eru 20 ára og eldri.

 

Tónleikar eldri nemenda í sal skólans á Selfossi 21. apríl2026-04-07T15:33:21+00:00

Vinavika 13. – 17. apríl

Við efnum í fyrsta sinn til VINAVIKU 13. – 17. apríl.

Í þessari viku mega nemendur bjóða vini/vinkomu með sér í tíma.

Vinavikan er nýjung í skólastarfinu og spennandi að sjá hvernig til tekst.

– Endilega nýtið þetta tækifæri til að mæta í félagsskap vinar 😊

Vinavika 13. – 17. apríl2026-04-22T17:53:29+00:00

Krakkabarokk á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars

Átta blokkflautunemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga taka þátt í Krakkabarokkhátíð á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars kl. 15:00, ásamt fjölda annarra hljóðfæranemenda og kóra.

Frítt inn, en hér er hægt að ná sér í (ókeypis) miða: https://www.harpa.is/vidburdir/20144

 

Upplýsingar af vef Hörpu:

Krakkabarokk í Eldborg 

 29. mars kl. 15:00–16:00
Eldborg, Harpa
Aldur: 5–15 ára
Tungumál: Íslenska – hægt að njóta óháð tungumáli
Aðgangur: Ókeypis – skráning á harpa.is

Krakkabarokk í Eldborg eru fjölskyldutónleikar þar sem Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk flytur fjölbreytta tónlist frá barokk- og endurreisnartímanum […]

Krakkabarokk á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars2026-03-27T14:57:51+00:00

Skólastjóri lítur um öxl

Skólastjóraskipti í Tónlistarskóla Árnesinga

Við þau tímamót að ég læt af störfum sem skólastjóri, er gaman að líta um öxl og horfa yfir farinn veg sl. 30 ár.

Ég hóf kennslu við Tónlistarskóla Árnesinga árið 1995, en hafði þá starfað í rúm 10 ár við Tónmenntaskóla Reykjavíkur og víðar.

Árið 2000 óskaði Róbert A. Darling, þá nýráðinn skólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga, eftir að ég tæki að mér hlutverk aðstoðarskólastjóra sem ég þáði. Þar með hófst mjög gefandi og skemmtilegt ævintýri við að byggja upp og þróa skólann í gegnum ótrúlegar breytingar á málefnum tónlistarskóla, sem og tæknilegar breytingar.

Þegar litið er til baka er í raun […]

Skólastjóri lítur um öxl2026-03-16T13:24:32+00:00

Tímamót – Stjórnemendaskipti við Tónlistarskóla Árnesinga 1. ágúst 2026

Það er komið að tímamótum í stjórn Tónlistarskóla Árnesinga, því 1. ágúst nk. láta bæði skólastjóri og aðstoðarskólastjóri af störfum.

Helga Sighvatsdóttir skólastjóri og Jóhann I. Stefánsson hafa bæði komið að stjórn tónlistarskólans sl. 25 – 26 ár. Helga sem aðstoðarskólastjóri 2000 – 2017 og skólastjóri frá 2018 – 2026 auk blokkflautukennslu og Jóhann sem stjórnandi á skrifstofu frá 2001 – 2017 og aðstoðarskólastjóri frá 2018 – 2026 auk málmblásturskennslu.

Helga hverfur til annarra verkefna, en Jóhann mun áfram sinna kennslu við skólann.

Skemmtileg og gefandi ár eru að baki, sem við þökkum innilega fyrir!

Helga og Jóhann

[…]

Tímamót – Stjórnemendaskipti við Tónlistarskóla Árnesinga 1. ágúst 20262026-03-12T13:48:16+00:00

Starf skólastjóra Tónlistarskóla Árnesinga laust til umsóknar – umsóknarfrestur til og með 14. apríl

Af vef ráðningarstofunnar www.mognum.is

SKÓLASTJÓRI TÓNLISTARSKÓLA ÁRNESINGA – 50skills

– – –

SKÓLASTJÓRI TÓNLISTARSKÓLA ÁRNESINGA

Árborg – Fullt starf
Umsóknarfrestur: 14.04.2026

Tónlistarskóli Árnesinga leitar að öflugum leiðtoga til að stýra faglegu starfi og rekstri eins stærsta og umsvifamesta tónlistarskóla landsins.

Skólastjóri ber ábyrgð á faglegu starfi, daglegum rekstri og þróun skólans og leiðir öflugt teymi starfsfólks.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi skólans
  • Leiða faglegt starf skólans og stuðla að áframhaldandi þróun tónlistarnáms
  • Mannauðs- og launamál
  • Samskipti við sveitarfélög, grunnskóla og aðra samstarfsaðila
  • Áætlanagerð og upplýsingagjöf
  • […]

Starf skólastjóra Tónlistarskóla Árnesinga laust til umsóknar – umsóknarfrestur til og með 14. apríl2026-04-13T17:46:14+00:00

Píanó-hringekjutónleikar í Stekkjaskóla 15. apríl

Píanó-hringekjutónleikar verða haldnir miðvikud. 15. apríl kl. ­­­­­18:00 í Hátíðarsal Stekkjskóla, Selfossi

Á tónleikunum koma fram píanónemendur á öllum stigum og leika fjórhent og sexhent lög á píanó. Verður verkefnum fléttað saman í skemmtilegt ferli.

Aðgangur er ókeypis – Verið öll hjartanlega velkomin!

Píanó-hringekjutónleikar í Stekkjaskóla 15. apríl2026-02-19T15:51:15+00:00

Miðdeildartónleikar í sal skólans 17. mars

Miðdeildartónleikar verða haldnir þriðjudaginn 17. mars kl. ­­­­­18:15 í sal skólans, Eyravegi 9, Selfossi

Dagskrá er fjölbreytt að vanda og koma nemendur fram á hin ýmsu hljóðfæri.

Flytjendur hafa allir lokið grunnprófi (3. stigi) á sitt hljóðfæri og alltaf gaman að fylgjast með þessum þróttmikla hópi.

Aðgangur er ókeypis – Verið öll hjartanlega velkomin!

Miðdeildartónleikar í sal skólans 17. mars2026-02-19T15:31:49+00:00

Framhaldsdeildartónleikar í Hveragerðiskirkju 16. mars

Framhaldsdeildartónleikar verða haldnir mánudaginn 16. mars kl. 18:15 í Hveragerðiskirkju.

Flytjendur hafa allir lokið miðprófi (5. stigi) á sitt hljóðfæri.

Dagskrá er fjölbreytt og gaman að fylgjast með leikni nemendanna þegar hér er komið í námi.

Aðgangur er ókeypis – Verið öll hjartanlega velkomin!

Framhaldsdeildartónleikar í Hveragerðiskirkju 16. mars2026-02-19T15:29:15+00:00

Páskafrí

Páskafrí 28. mars – 6. apríl. Öll kennsla fellur niður þessa daga.

Kennsla hefst á ný eftir páska þriðjud. 7. apríl.

Páskafrí2026-02-17T15:52:00+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi