Nýir skólastjórnendur frá 1. ágúst 2026

Nýir skólastjórnendur hafa verið ráðnir að Tónlistarskóla Árnesinga frá 1. ágúst 2026. Það eru þau Stefán Haukur Gylfason skólastjóri og Pamela De Sensi aðstoðarskólastjóri.

Stefán Haukur er með B.M gráðu í klassískum gítarleik og meistaragráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands auk diplóma í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands.
Pamela er með meistaragráðu í þverflautuleik frá Listaháskólanum í Flórens og Listaháskólanum í Campobasso og meistaragráðu í kammertónlist frá Listaháskólanum í Róm.
Bæði eru þau með mikla og víðtæka reynslu af kennslu og stjórnun.

Við óskum nýjum skólastjórnendum innilega velfarnaðar í nýjum störfum og hlökkum til að sjá þá fersku vinda sem þau blása í segl tónlistarskólans!

/Helga […]

Nýir skólastjórnendur frá 1. ágúst 20262026-06-23T14:23:10+00:00

Styrkur frá Rótarýklúbbi Selfoss

Rótarýklúbbur Selfoss tengist sögu Tónlistarskóla Árnesinga frá upphafi, því félagar rótarýklúbbsins komu að stofnun skólans árið 1955.

Tónlistarskólinn hefur í gegnum árin notið góðvildar Rótarý m.a. með styrkjum til hljóðfærakaupa eða til kaupa á öðrum búnaði. Á 70 ára afmælisári 2025 fékk skólinn m.a. styrk sem nýttur var til kaupa á gagnvirkum skjá fyrir tónfræðikennslu og þann 19. maí sl. veitti Rótarýklúbburinn tónlistarskólanum 300.000 kr. styrk, sem nýttur verður til hljóðfærakaupa á komandi vetri.

Við þökkum Rótarýklúbbi Selfoss innilega fyrir stuðninginn!

Helga Sighvatsdóttir, skólastjóri

Styrkur frá Rótarýklúbbi Selfoss2026-06-12T17:59:44+00:00

Skólaslit á níu stöðum

Tónlistarskóla Árnesinga var slitið að vanda með níu tónleikum í maílok, þar sem skiptust á tónlistarflutningur og afhending prófskírteina. Þetta eru alltaf hátíðlegar stundir og gaman að sjá og heyra afrakstur vetrarins á skólaslitum.

Takk fyrir allan dugnaðinn kæru nemendur, takk fyrir stuðninginn kæru foreldrar og takk kæru kennarar fyrir faglega og flotta vinnu.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá nokkrum skólaslitanna.

/Helga Sighv.

[…]

Skólaslit á níu stöðum2026-06-12T17:11:10+00:00

Vortónleikar og Suzukiútskriftir

Vorið er alltaf líflegur hvað tónleikahald varðar og má hér fyrir neðan sjá nokkrar myndir frá vortónleikum og Suzukiútskriftum í apríl og maí. Það var afskaplega ánægjulegt að hlýða á alla þessa flottu tónleika þar sem nemendur stóðu sig hver öðrum betur 🙂

/Helga Sighv.

[…]

Vortónleikar og Suzukiútskriftir2026-06-12T16:49:01+00:00

Sumaropnun skirfstofu skólans

Skrifstofa Tónlistarskóla Árnesinga verður opin 3. – 12. júní kl. 8 – 12 og 13 – 16.

Sumaropnun skirfstofu skólans2026-05-27T19:54:27+00:00

Auglýst eftir aðstoðarskólastjóra – umsóknarfrestur til 22. maí

Aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga

Auglýst er eftir aðstoðarskólastjóra til starfa við Tónlistarskóla Árnesinga frá 1. ágúst 2026. Stjórnunarhlutfall er um 85%, kennsluskylda 15%.

Umsóknarferstur er til 22. maí 2026

Sjá nánar hér: Aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga | Tónlistarskóli Árnesinga

 

Auglýst eftir aðstoðarskólastjóra – umsóknarfrestur til 22. maí2026-05-13T08:03:35+00:00

Skólaslit á kennslustöðum

Skólaslit verða á kennslustöðum sem hér segir:

21. maí kl. 16:00 í BES Stokkseyri – nemendur frá Stokkseyri og Eyrarbakka

21. maí kl. 18:00 í Þorlákskirkju – nemendur úr Þorlákshöfn

 

22. maí kl. 15:00 í Félagsheimilinu Árnesi – nemendur úr Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi

22. maí kl. 16:00 í Félagsheimilinu Árnesi – nemendur úr Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi

 

26. maí kl. 16:00 í Félagsheimilinu Aratungu – nemendur úr Reykholtsskóla

26. maí kl. 18:00 í Skálholtskirkju – nemendur úr Bláskógaskóla Laugarvatni og Grímsnes- og Grafningshreppi

26. maí kl. 18:00 í Hveragerðiskirkju – nemendur úr Hveragerði og Ölfusi

 

27. maí kl. 16:00 í Félagsheimilinu Þjórsárveri – nemendur úr Flóahreppi

27. […]

Skólaslit á kennslustöðum2026-04-24T08:28:13+00:00

Smiðjuvikan

Smiðjuvikan 4. – 8. maí

Í smiðjuviku stokka kennarar upp hefðbundna kennslu fyrir sinn nemendahóp og bjóða þeim í staðinn t.d. upp á meistaranámskeið, sérstaka samspilstíma eða eitthvað annað fróðlegt og skemmtilegt. – Ef þið eruð ekki viss um hvenær þig eigið að mæta eða hvernig kennslu verður háttað, hafið þið samband við ykkar kennara og spyrjið.

Tónfræðitímar, samspil og hljómsveitaræfingar falla niður þessa viku, nema um annað hafi verði rætt t.d. vegna undirbúnings fyrir skólaslit.

Smiðjuvikan2026-04-24T08:22:39+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi