Styrkur frá Rótarýklúbbi Selfoss

Rótarýklúbbur Selfoss tengist sögu Tónlistarskóla Árnesinga frá upphafi, því félagar rótarýklúbbsins komu að stofnun skólans árið 1955.

Tónlistarskólinn hefur í gegnum árin notið góðvildar Rótarý m.a. með styrkjum til hljóðfærakaupa eða til kaupa á öðrum búnaði. Á 70 ára afmælisári 2025 fékk skólinn m.a. styrk sem nýttur var til kaupa á gagnvirkum skjá fyrir tónfræðikennslu og þann 19. maí sl. veitti Rótarýklúbburinn tónlistarskólanum 300.000 kr. styrk, sem nýttur verður til hljóðfærakaupa á komandi vetri.

Við þökkum Rótarýklúbbi Selfoss innilega fyrir stuðninginn!

Helga Sighvatsdóttir, skólastjóri

2026-06-12T17:59:44+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi