Tónlistarskóla Árnesinga var slitið að vanda með níu tónleikum í maílok, þar sem skiptust á tónlistarflutningur og afhending prófskírteina. Þetta eru alltaf hátíðlegar stundir og gaman að sjá og heyra afrakstur vetrarins á skólaslitum.
Takk fyrir allan dugnaðinn kæru nemendur, takk fyrir stuðninginn kæru foreldrar og takk kæru kennarar fyrir faglega og flotta vinnu.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá nokkrum skólaslitanna.
/Helga Sighv.
