Hóptímar hefjast 3. september
Hóptímar (tónfræði, hljómsveitir og samspil) og undirleikstímar hefjast frá og með miðvikud. 3. september.
Hóptímar (tónfræði, hljómsveitir og samspil) og undirleikstímar hefjast frá og með miðvikud. 3. september.
Einkatímar hefjast samkvæmt stundaskrá miðvikud. 27. ágúst.
Í dreifibréfinu hér fyrir neðan (krækjunni) er að finna ýmsar upplýsingar sem gagnast þeim sem hafa áhuga á að sækja um skólavist fyrir næsta vetur:
Gott að sækja um sem fyrst til að tryggja sér pláss 🙂
Tónlistarskóli Árnesinga óskar eftir að ráða til starfa píanókennara frá 1. ágúst 2025.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Kennt er samkvæmt Aðalnámskrá tónlistarskóla.
Launakjör skv. kjarasamningum FT og FÍH við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir Helga Sighvatsdóttir skólastjóri.
Síma 861-9687, póstfang: helga@tonar.is.
Umsóknarfrestur er til 27. júní 2025.
Með umsókn fylgi upplýsingar um menntun og fyrri störf.
Tónlistarskóli Árnesinga er einn af stærstu tónlistarskólum landsins með starfsemi á 12 kennslustöðum í Árnessýslu. Fjöldi […]
Tónlistarskóla Árnesinga var slitið vikuna 21. – 28. maí með níu tónleikum. Hefð er fyrir því að slíta skólanum á hverjum kennslustað fyrir sig og skólaslitavikan því sannkallaður uppskerutími.
Hér má sjá nokkrar myndir frá hinum ýmsu skólaslitum, en þau fóru fram í Félagsheimilum Hrunamanna á Flúðum, Þjórsárveri, Aratungu og Árnesi, í Skálholtskirkju, Þorlákskirkju, Hveragerðiskirkju og Selfosskirkju og í Barnaskólanum á Stokkseyri.
Með þessum myndum þökkum við nemendum okkar og foreldrum innilega fyrir samfylgdina í vetur!
/Helga Sighv.
Vikuna 4. – 8. maí var öll hefðbundin kennsla stokkuð upp og nemendum boðið að mæta í tónlistarsmiðjur/námskeið í staðinn. Boðið var upp á mjög fjölbreyttar smiðjur svo sem ýmis tónlistarspil og -leikir, kvikmyndasýning, kahood-spurningakeppni, innsýn gefin í galdra kvikmyndatónlistar, langspilssmiðja og Væbsmiðja, auk þess sem rýnt var dýpra í hljóma, liti og sögu tónlistar, svo fátt eitt sé talið.
Hér má sjá lítið sýnishorn frá nokkrum smiðjum:
[…]
Söngdeild tónlistarskólans stóð fyrir barokktónleikum í Selfosskirkju 15. maí.
Á tónleikunum fluttu söngnemendur Eyjólfs og Margrétar lög frá endurreisnar- og barokktímanum (1450 – 1750), við sembalundirleik Esterar og sellóundirleik Uelle. Komu söngnemendur ýmist fram sem einsöngvarar eða í sönghópi og fluttu okkur aftur til fyrri tíma með lagavali og tilheyrandi meðleikshljóðfærum. – Virkilega falleg stund í Selfosskirkju.


/Helga Sighv.
Nemendur tónlistarskólans komu víða fram í maí. Má þar nefna þátttöku í Krakkabarokki í Selfosskirkju þar sem Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk flutti fjölbreytta tónlist frá barokktímanum í félagi við tónlistarnemendur og kórsöngvara af Suðurlandi, hljóðfæraleik í fermingarveislum fjölskyldna, styrktartónleika og þing Landsbjargar á Selfossi þar sem leikið var fyrir um 500 þinggesti í íþróttahúsi Vallaskóla. – Alltaf gaman að geta stigið út í samfélagið með tónlistarflutning og gríðar góð reynsla fyrir nemendur.
/Helga Sighv.

Valdís Jóna og Marta Elísabet leika á styrktartónleikum

Frá þingi Landsbjargar í íþróttahúsi Vallaskóla (Mynd: www.dfs.is)
Söngdeild Tónlistarskóla Árnesinga heldur barokktónleika í Selfosskirkju fimmtud. 15. maí kl. 17:00.
Flutt verður tónlist frá barokktímabilinu (1600-1750), en flytjendur eru söngnemendur undir stjórn Margrétar S. Stefánsdóttur og Eyjólfs Eyjólfssonar. Ester Ólafsdóttir leikur með á sembal og Uelle Hahndorf á selló.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!
Tveir nemendur ljúka námi við Tónlistarskóla Árnesinga í vor með framhaldsprófi. Þetta eru þær Karolina Konieczna sem lýkur söngnámi og Sylvía Rossel sem lýkur blokkflautunámi. Framhaldsprófi lýkur með opinberum tónleikum og fóru þeir fram 12. og 13. maí.
Karolina hélt söngtónleika í Selfosskirkju 12. maí. Ester Ólafsdóttir lék með á píanó, en að auki kom sönghópur tónlistarskólans fram og Anna María Konieczna söng með systur sinni.
Sylvía hélt blokkflaututónleika í Hveragerðiskirkju 13. maí. Meðleikarar hennar voru Guðjón Halldór Óskarsson á sembal og Uelle Hahndorf á selló. Að auki komu fram Daniel Cassidy á gítar, Hugrún Birna Hjaltadóttir á fiðlu, Kristín Jóh. Dudziak Glúmsdóttir […]